Það er alltaf gaman að heimsækja Stokkhólm en Stokkhólmur á aðventunni er alveg sérstök upplifun. Fara á jólamarkaðinn í Skansen, gæða sér á ekta sænsku jólahlaðborði og rölta um borgina í rólegheitum og finna ilminn af "pepparkakor".
Komdu með í helgarferð frá 28.nóv til 1.des. 2024 og upplifðu með okkur sanna aðventustemmningu.
Áhugasamir geta haft samband með því að fylla út formið að neðan eða með tölvupósti á info@stjornuferðir. Einnig er hægt að hringja í síma 8976603.
VERÐ: 155.500 Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVÍBÝLI.
Aukalega fyrir einbýli: 15.500
05:30. Hópurinn hittist í Leifsstöð fyrir framan Icelandair skrifstofuna
í brottfararsal.
07:35. Brottför flugs með Icelandair til Arlanda íí Stokkhólmi.
11:45. Lending á Arlanda
Ath: Tímamismunur er 1 klukkustund.
Fararstjóri tekur á móti hópnum og rúta ekur farþegum á Berns
Hotel, 4 stjörnu Boutique Hotel vel staðsett í hjarta Stokkhólms þar
sem gist verður í 3 nætur.
- Innritun og frjáls eftirmiðdagur.
19:00 Kvöldverður á Asiatique de Berns sem er staðsettur við hliðina á Berns Hotel.
Margrómaður asískur veitingastaður í heillandi umhverfi.
Ath Kvöldverður er frjálst val og er ekki innifalið í verði.
10:00 Hópurinn hittist í anddyri hótelsins og gengið verður fallega
leið meðfram Strandvägen og hafnarbakkanum að Konunglega
Djurgården þar sem Skansen og Gröna Lund Tívolí eru staðsett. Við
fræðumst um söguna kringum sænskt jólahald, yljum okkur við
opinn arineld og skoðum eitthvað af þeim 70 mismunandi básum
sem bjóða uppá handverk, mat, list og annað sem tengist jólunum.
14:00 Skoðum Abba safnið sem er í göngufjarlægð frá Skansen.
16:00 Haldið aftur á hótel.
19:00 Stutt ganga yfir í Gamla Stan þar sem við snæðum ekta
sænskt jólahlaðborð í fallegu umhverfi frá 14. öld.
10:00 Hópurinn hittist í anddyri hótelsins og gengið verður fallega leið meðfram Strandvägen og hafnarbakkanum að Konunglega Djurgården þar sem Skansen og Gröna Lund Tívolí eru staðsett. Við fræðumst um söguna kringum sænskt jólahald, yljum okkur við opinn arineld og skoðum eitthvað af þeim 70 mismunandi básum sem bjóða uppá handverk, mat, list og annað sem tengist jólunum.
14:00. Skoðum Abba safnið sem er í göngufjarlægð frá Skansen.
16:00. gönguferð til baka á hótel.
19:00. Stutt ganga yfir í Gamla Stan þar sem við snæðum ekta
sænskt jólahlaðborð í fallegu umhverfi frá 1400 öld.
09:30. Lagt af stað frá hóteli með rútu til Arlanda.
12:50. Flug með Icelandair til Keflavíkur
15:15. lent í Keflavík
Erna er búsett í Stokkhólmi, lærður markaðsfræðingur og hefur starfað sem markaðsstjóri víða um heim. Hún bjó og starfaði á Tenerife ásamt fjölskyldu sinni um árabil og tók m.a. að sér að fararstjórn fyrir skandinavísk fyrirtæki og ráðstefnuhópa.
Erna hefur búið í mörg ár í Stokkhólmi og
þekkir vel allar faldar perlur borgarinnar. Hún leggur áherslu á að kynna Íslendingum fyrir því besta sem Stokkhólmur hefur uppá að bjóða í mannlífi og menningu, mat og listum.