Grikkland hefur yfir sér rómantískan blæ; sagan kallar á okkur nánast í hverju fótmáli , maturinn er ferskur og ljúffengur og fólkið vingjarnlegt og gestrisið.
'i Aþenu er vart er hægt að snúa sér við án þess að rekast á stórkostlegar minjar frá þeim tíma þegar forn Grikkir voru án efa ein framsæknasta þjóð heimsins, en Aþena er jafnframt nútímaleg stórborg með öllu því sem því fylgir.
Á landsbyggðinni er kyrrð og ró og mikil fegurð, og einstaklega gaman að upplifa þá hlið Grikklands; Grikkland eins og það er í dag, en með fornsögulegar minjar hvert sem litið er.
Og síðast en ekki síst eru það allar yndislegu eyjarnar. Þar eru frægastar Mykonos og Santorini, sem við höfum svo oft séð í tímaritum og kvikmyndum- hvítkölku3ð húsin sem bera við fagurbláan himinn og kóbaltblátt hafið. Þessi sjón ein og sér örvar hjartslátti nn...
Næsta ferð okkar til Grikklands er 13-28. september 2024 undir traustri leiðsögn Ingibjargar Lárusdóttur.
Til að sjá ferðalýsingu, smellið hér .
Ef þú vilt skrá þig, smelltu hér
Copyright © 2024 Stjornuferdir - All Rights Reserved.
Powered by GoDaddy