Indland

3.-23. október 2026

Ferðalag um Indland hefur áhrif á öll skilningarvitin! Að nema lyktina, finna bragðið og heyra hljóðin, sjónhrifin og sterkar tilfinningarnar. Indland er svo sannarlega land andstæðna, en þegar upp er staðið snýst ferðalagið um fólkið, indverska gestrisni og aldargamla menningu og hefðir.

Ferðalagið snýst líka um að sökkva sér algjörlega ofan í umhverfið og leyfa sérstöku andrúmslofti landsins að taka yfir. Ferðalag um Indland er reynsla sem breytir lífi ferðalangsins og verður að ógleymanlegu ævintýri.

Við ætlum að bjóða þér að taka þátt í þessu ævintýri í október 2026. Gist verður á frábærum 5* hótelum þar sem þjónusta og aðstaða er á öðru stigi en þú hefur áður upplifað.

Ferðaskipulag okkar leggur áherslu á að þú kynnist Indlandi, bæði til forna og eins og það er í dag, en það er líka nægur tími til að njóta. Í lok ferðar dveljum við 5 nætur á glæsilegu hóteli við ströndina í Goa á suðurvestur Indlandi sem er þekkt fyrir frábærar strendur, góðan mat og aðstöðu. Þannig komið þið heim úthvíld og endurnærð eftir þetta mikla ferðalag, eftir að hafa drukkið í sig menninguna og andrúmsloftið á ferðalaginu um Indland.

VERÐ

kr 1.490.000
  • Á mann m.v. tvíbýli

Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn

Íslensk fararstjórn og frábærir innlendir staðarleiðsögumenn.

Allur akstur í nýtti loftkældri rútu með WiFi.

Gisting á glæsilegum 5* hótelum með morgunverði – sjá hótel lista hér að neðan.

Nokkrir hádegisverðir og kvöldverðir.

Allur aðgangseyrir skv. leiðarlýsingu.

Flug til/frá Goa

Gististaðir

The Imperial hótel er tákn um lúxus og ríka sögu í hjarta borgarinnar.
Hótelið sameinar nýlendustíl og nútímaþægindi á einstakan hátt.
Gestir geta notið fallegra garða, fagurra byggingarlistar og þar er að finna merkilegt listmunasafn.
Staðsetningin er miðsvæðis, nálægt helstu kennileitum borgarinnar.
Dvöl á Imperial býður upp á ógleymanlega upplifun af indverskri gestrisni.

ITC Mughal í Agra er glæsilegt lúxushótel innblásið af veldi Mógúla.
Hótelið býður upp á rúmgóða garða, fallega byggingarlist og róandi heilsulind.
Það er staðsett nálægt Taj Mahal, einu frægasta kennileiti Indlands.
Gestir njóta fyrsta flokks þjónustu og fjölbreyttrar matargerðar.
ITC Mughal er fullkominn kostur fyrir þægilega og eftirminnilega dvöl í Agra.

Nahargarh Fort Hotel er glæsilegt hótel byggt í stíl sögulegs virkis.
Það sameinar sérstakan  rajput-arkitektúr  Indlands og nútímaþægindi.
Hótelið býður upp á stórkostlegt útsýni og rólegt umhverfi.
Gestir geta notið fallegra herbergja og fyrsta flokks þjónustu, auk þess sem stutt er í Ranthambore  þjóðgarðinn sem er þekktastur fyrir verndun tígrisdýra.

Hótelið býður gestum upp á friðsælt athvarf innan iðandi borgarinnar.
Hótelið er umlukið víðáttumiklum görðum sem skapa rólegt og afslappað andrúmsloft.
Innréttingar endurspegla konunglega sögu Rajasthan héraðsins með hlýjum litum og handgerðum smáatriðum.
Gestir geta notið hefðbundinnar indverskrar matargerðar sem og alþjóðlegra rétta.
Dvöl á Taj Jai Mahal er upplifun sem sameinar menningu, þægindi og afslöppun.

 

Taj Hari Mahal í Jodhpur minnir á glæsilega höll frá fyrri tíð með turnum, bogagöngum og vatnsspeglum.
Hótelið stendur í rólegu umhverfi, fjarri ys borgarinnar, en samt nálægt helstu kennileitum.
Gestir upplifa einstakt andrúmsloft þar sem saga og nútími mætast.
Á staðnum eru notaleg herbergi og veitingastaðir sem leggja áherslu á ríkulega matarmenningu Rajasthan.
Dvöl á Taj Hari Mahal gefur ferðamönnum tilfinningu fyrir konunglegri gestrisni í Jodhpur.

 

Ferðalýsing

Brottför til Helsinki

Komið til Delhi að morgni næsta dags.

Tekið er á móti hópnum á flugvellinum og keyrt er rakleiðis á hótel í morgunverð. Okkar fyrstu kynni af Delhi höfuðborg Indlands er á leiðinni frá flugvellinum.

Hér má svo sannarlega sjá samruna hins forna og nútímalega Indlands. Þá er áætlað að í borginni búi um 22 milljónir manna, svo þar er ys og þys allan sólarhringinn eins og nærri má geta.

Delhi samanstendur af sjö borgum sem spanna tímabilið frá 11. til 20. aldar. Í borginni hefur í gegnum tíðina verið mikill uppgangur en jafnframt fall margra keisara, sem margir hafa samt sem áður skilið eftir sig glæsilega minnisvarða sem minna á stórfengleika og dýrð liðinna tíma. Það eru fáar borgir í heiminum sem státa slíkri fjölbreytni í byggingarstílnum.

Síðdegis, eftir að hafa hvílt okkur aðeins, er boðið upp á matargöngu í borginni, sem er kjörin leið til að demba sér strax í framandi menningu!

Í göngunni munum við heimsækja 6–9 mismunandi veitingastaði, sem allir hafa starfað í áratugi – sumir jafnvel í allt að 120 ár. Við göngum í gegnum þekkta og líflega markaði, förum á rickshaw hjól, röltum aðeins og gæðum okkur á ljúffengum götumatnum í gamla hluta Delhi. Það sem gerir upplifunina sérstaka er að göngunni er stýrt af indverskum matreiðslumeistara, sem veitir innsýn í matarmenningu borgarinnar, veitingastaði, eldhús og tengd fyrirtæki. Á meðan á göngunni stendur smökkum við um 12–15 rétti á 6–9 mismunandi stöðum, svo smakkð endar sem full máltíð.

Gisting: The Leela Palace eða The Oberoi New Delhi – Premier Room

Eftir morgunverð, höldum við í skoðunarferð um Delhi, bæði í rútu og á rickshaw.

Við skoðum glæsileg mannvirki frá því um miðja 17. Öld:

  • Jama Masjid, stærstu mosku Indlands.

  • Red Fort virkið.

  • Grafhýsi Humayuns sem var reist af eiginkonu keisarans Humayuns, tók átta ár að byggja. Eiginkonan, Begai Begum, var grafin í grafhýsinu, og mannvirkið er það fyrsta sinnar tegundar sem var reist í miðju vel skipulagðs garðs. Samsetning hvíts marmara og rauðs sandsteins hafði mikil áhrif á síðari tíma byggingarlist í Indlandi og er grafhýsið álitið vera frumgerð hins fræga Taj Mahal í Agra.

  • Gurdwara Bangla Sahib er stærsta Sikh-hofið í borginni Delí, Indlandi. er auðþekkt á einkennandi gullinni hvelfingu. Upphaflega var Gurdwara Bangla Sahib höll, þekkt sem Jaisinghpura, og var eign Raja Jai Singh, valdhafa á Indlandi á 17. öld. Árið 1664 dvaldi áttundi Sikh-leiðtoginn, Guru Har Krishan, þar meðan hann heimsótti Delhi. Á þeim tíma geisaði kólerufaraldur í borginni og mun hann hafa sett upp súpueldhús fyrir gesti og gangandi.

Ef við náðum ekki að heimsækja krydd- og matarmarkaðinn Chandni Chowk Market deginum áður, þá förum við þangað á degi 3.

Gisting: Sama og sl. nótt. Máltíðir: Morgunmatur og hádegisverður

Eftir morgunverð höldum við af stað til Agra. Rútan er loftkæld með interneti, og keyrslan er um 4 klst. löng.

Við fáum hádegisverð á leiðinni.

Agra var höfuðstaður Mugahal keisaradæmisins á 17. öld og var um leið miðstöð lista, vísinda, verslunar og menningar. Gullni tími borgarinnar var þó heldur stuttur, því Shah Jehan tók yfir í lok aldarinnar og er hann sá sem átti hugmyndina að hinu stórfenglega Taj Mahal. Í dag búa í Agra tæplega 2 milljónir manna.

Þegar komið er til Agra er frjáls tími eftir hádegi og hægt að slaka á við dásamlega sundlaugina.

Gisting: ICT Marriot Mughal Máltíðir: Morgunmatur og hádegisverður

Við verðum að vakna snemma til að upplifa sólarupprásina við Taj Mahal, sem reyndar er aðeins háð veðurskilyrðum, en októbermánuður er yfirleitt góður mánuður til að heimsækja Agra.

Þessi stórfenglegi minnisvarði ástarinnar, Taj Mahal, var reistur af keisara til minningar um heittelskuðu drottningu sína. Bygging Taj Mahal hófst árið 1631 og er talið að hún hafi tekið 22 ár og yfir 20.000 handverksmenn unnu allan sólarhringinn.

Hönnun og framkvæmd var í höndum arkiteksins Ustad Ahamad Lahori. Samkvæmt þjóðsögu lét keisarinn höggva hendur Lahori af og blinda hann þegar verkinu var lokið, svo hann gæti aldrei endurtekið verkið!

Það sem gerir Taj Mahal einstakt eru fullkomin hlutföll byggingarinnar, og höllinni hefur verið lýst sem það hafi kvenlegt yfirbragð, ótrúlega nákvæmt byggingarsamræmi og skrautleg smáatriði.

Marmaraklæðningin endurkastar bleikum og gylltum tónum við sólarupprás og sólsetur, en er hvítt og bjart á daginn.

Það er ómögulegt að ímynda sér Taj Mahal í öðru umhverfi en hinum dularfulla og fallega garði sem umlykur höllina. Þið munuð svo sannarlega sjá með eigin augum að það er engum ofsögum sagt um fegurð Taj Mahal.

Seinni skoðunarferð okkar er í Agra virkið, sem er skammt frá Taj Mahal og er virkið á heimsminjaskrá UNESCO. Agra virkið var mikilvægasta virki landsins lengi vel og þaðan var landinu stjórnað á öldum áður og þar var ríkissjóðurinn til húsa og myntsláttur.

Gisting: Sama og sl. nótt 

Máltíðir: Morgunmatur

Eftir morgunverð er lagt af stað til Ranthambhore.

Við byrjum á að heimsækja hina keisaralegu borg Fatehpur Sikri, var byggð af Múgúlakeisaranum Akbar á 16. Öld. Mikilleiki byggingarlistar þessarar yfirgefnu borgar verður vart lýstur með orðum, það er aðeins hægt að skynja mikilfengleikann með því að standa andspænis borginni og stórfenglegum mannvirkjum hennar.

Haldið er áfram ferðinni, og við rætur Aravalli-fjallanna, 135 km frá Jaipur og 11 km frá Sawai Madhopur, er Ranthambore-þjóðgarðurinn – þekkt tigraverndarsvæði og glæsilegt dæmi um árangur verndaráætlunar Indlands um verndun tígrísdýra. Skógarnir í kringum Ranthambore-virkið voru áður aðal veiðisvæði konunganna í Jaipur.

Þetta er einn vinsælasti þjóðgarður landsins til að skoða tígrisdýr og er sannkölluð paradís fyrir ljósmyndara, þar sem vötn og tjarnir laða að sér villt dýr, og daglegt líf rándýra og bráða fer fram í sínu náttúrlega umhverfi. Ranthambore er talið eitt besta dýralífssvæði Indlands og einnig flokkað sem menningarminjasvæði vegna fallegra rústanna af virkinu sem prýða garðinn.

Gisting: Taj Swai hotel 

Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður, kvöldverður

Það er farið inn í þjóðgarðinn snemma morguns og aftur um eftirmiðdaginn til að freista þess að koma auga á tígrisdýrin og önnur villt dýr. Nákvæm tímasetning verður ákveðin á staðnum.

Gisting: Sama og sl. nótt

Eftir morgunverð er útskráning af hótelinu og lagt af stað til Jaipur.

Jaipur, sigurborgin, sem er einnig þekkt sem Bleika borgin, er staðsett í eyðimerkurhéraði Rajasthan. Borgin er umkringd hrjóstugum hæðum, hver með sitt volduga virki á toppnum, ásamt fögrum höllum og görðum sem skreyta borgina. Hallirnar og virkin úr fortíðinni bera þess vitni að á þessum stöðum voru konunglegar skrúðgöngur og ríkidæmi og eru nú hluti af því sem ber við himinn í hversdagslegu amstri íbúa bleiku borgarinnar.

Þegar komið er til Jaipur er dagurinn frjáls þar til kvöldar, en þá tökum við þátt í aarti-athöfn í Birla-hofinu, sem er einstaklega fögur marmarabygging. Sagan segir að konungur Jaipur hafi gefið Birla-fjölskyldunni lóðina fyrir aðeins eina rúpíu til að byggja musterið. Í dag er hofið eitt glæsilegasta dæmi um indverska handverkslist, með stórkostlegum höggmyndum og skúlptúrum.

Inni í hofinu má sjá ýmis listaverk eins og líkneski af Lakshmi Narayan, sem er útskorinn úr einni steinblokk, og innviðirnir eru skreyttir goðsagnamyndum af hindúa guðum sem og myndum af heimspekingum og áhrifamönnum eins og Sókratesi, Kristi, Búdda og Zaraþústra.

Að lokum nýtur þú kyrrlátrar helgiathafnar inni í hofinu – aarti, sem er helgisiðir Hindúa til að heiðra guð eða gyðju, oft í musterum eða inni á heimilum.

Athöfnin felur í sér að ljósi yfirleitt í formi logandi lampa eða kerta sem sveiflað er í hringi fyrir framan guðamynd eða altari. Þetta táknar andlega bæn þar sem ljósinu er sýn virðing og er ljósið tákn um hreinsun, nærveru og guðlega náð.

Gisting: Taj Jai Mahal Palace

Í dag verður borgin Jaipur skoðuð, en þar búa um 4 millj. manns. Dagurinn verður nokkuð langur og etv. strangur, en skilur mikið eftir sig.

Amber-virkið: Þetta stórfenglega virki er glæsilegt dæmi um svokallaða Rajput-byggingarlist, með veröndum og varnarmúrum sem endurspeglast í Maota-vatni fyrir neðan. Við förum upp að virkinu í jeppa. Inni í virkinu má sjá konunglegar vistarverur, skreyttar fílabeini, speglum og glitrandi glerlist, auk glæsilegra veggmálverka. Það er auðvelt að ímynda sér þegar gengið er um þetta tignarlega mannvirki, að ríkið sem bjó yfir þessum glæsileika og íburði hafi verið ósigrandi.

Við stoppum við til að taka myndir við Hawa Mahal (Höll vindanna) – fimm hæða undur með pýramídalaga framhlið, hangandi, útskornum gluggum með útskornum skjám, hvelfingum og turnum.

City Palace safnið: Hér getur á að líta sambland af hefðbundinni Rajasthani- og Múgúlalist. Safnið sýnir konunglegar skikkjur, dýrmæt teppi, fornan vopnabúnað og örsmá málverk sem sýna dómstóla, bardaga og skrúðgöngur. Safnið er staðsett í hjarta hinnar múruðu borgar og gefur góða mynd af framsýni stofnanda Jaipur, Sawai Jai Singh.

Jantar Mantar: Ein af fimm stjörnuathugunarstöðvum Indlands. Byggt af Sawai Jai Singh og er eitt það stærsta og best varðveitta. Þetta var ástríðuhugðarefni konungsins tengt stjörnufræði og tölulegri merkingu, og í samstarfi við hæfa handverksmenn voru búin til flókin mælitæki úr steini – mörg þeirra veita enn í dag nákvæmar upplýsingar.

Kvöldsafarí – Jaipur um kvöld: Þetta verður spennandi ævintýri um Jaipur í opnum jeppa þegar rökkrið skellur á. Ferðin hefst með fallegum kvöldakstri að Nahargarh-virkinu, staðsett á toppi Aravalli-hæðanna, þar sem þú nýtur magnaðs sólsets sem litar borgina í gylltum og rauðum tónum.

Eftir sólsetur heldur ferðin áfram inn í borgarmúranna inn í gömlu borgina í Jaipur. Göturnar lifna við í ljósi sem fellur á sögufrægar byggingarnar og iðandi mannlífi á mörkuðum markaða. Finndu næturblæinn á meðan þú ferðast í gegnum söguleg hlið og þröngar götur – og upplifðu dularfulla stemningu Bleiku borgarinnar eftir myrkur. Og það er einhvern veginn draumkennt að sjá helstu kennileiti borgarinnar böðuð í tunglsljósi, þar á meðal Hawa Mahal og Albert Hall. Að fara í þessa einstöku kvöldferð verður ógleymanlegt ævintýri.

Gisting: Sama og sl. Nótt

Eftir morgunverð er haldið til Jodhpur en á leiðinni munum við stoppa í litla friðsæla bænum Pushkar sem liggur í jaðri eyðimerkurinnar. Pushkar stendur við bakka Pushkar-vatns, sem er mikilvægur pílagrímsstaður hindúa. Engin pílagrímsferð er talin fullkomin án þess að baða sig í helga Pushkar-vatninu. Í Pushkar eru um 400 hof og 52 tröppur eða stigar niður að vatninu. Þarna er einnig að finna eina hof landsins sem er tileinkað Brahma.

Þó svo að Pushkar sé helgur staður fyrir trúaða, er hann einnig vettvangur einnar litríkustu nautgripahátíðar landsins – Pushkar-hátíðarinnar og er sú hátíð haldin í október eða nóvember skv. dagatali Hindu. Kannski verðum við heppin og verðum stödd þarna í kringum hátíðina.

Það er eitthvað mjög sérstakt að heimsækja þennan helga hindúa-bæ, sem var uppgötvaður af hippum í lok sjöunda áratugarins og hefur síðan verið vinsæll samkomustaður ferðalanga alls staðar að úr heiminum.

Síðan höldum við ferð okkar áfram til Jodhpur, sem er staðsett í vesturhluta Rajasthan, á jaðri Thar-eyðimerkurinnar. Borgin er um 600 km vestur af Delhi og þekkt sem „hlið eyðimerkurinnar“. Þar búa um 1.5 milljón manns. Hún er stundum kölluð „Bláa borgin“ vegna þess að margar byggingar þar eru málaðar í bláum lit, sem er tákn fyrir virðingu og vernd.

Jodhpur á eitt það sérkennilegasta minnismerki fornar frægðar, ríkulega skreytt virki sem var eitt öflugasti virki Indlands, og hefur verið heimili konunga, keisara, heilagra manna og hermanna síðan á 15. öld – og margir þekktir stjórnmálamenn nútímans koma þaðan. Í dag er þetta ekki meðal ríkustu borga Indlands, en tvímælalaust ein af þeim mest heillandi.

Við komuna til Jodhpur, tékkum við inn á hótel og tökum því rólega.

Gisting: Taj Hari Mahal

Morgunverður á hótelinu og síðan er haldið af stað að skoða Jodhpur mannvirkin.

Mehrangarh-virkið: Virkið stendur hundrað fetum yfir borginni á lóðréttum kletti, fjögur hundruð fetum yfir sjóndeildarhring Jodhpur. Það er byggt úr glansandi rauðum sandsteini – hrífandi, ógnvekjandi og þó með dularfullri fegurð sem laðar. Margt hefur verið skrifað um þetta „virki sólarinnar“, og með réttu – þetta er eitt áhrifamesta virki í allri Rajasthan.

Við skoðum þetta glæsilega virki og heimsækjum líka Moti Mahal (Perluhöllina), Phool Mahal og Sheesh Mahal ásamt Jaswant Thada sem er safn af konunglegum grafbyggingum úr hvítum marmara.

Eftir hádegisverð er hægt að eyða tíma á markaðssvæðinu við klukkuturninn sem er vinsælt kennileiti í gamla bænum. Hinn líflegi Sardar-markaður er í grennd við hann, og þröngar götur liggja þaðan að mörkuðum þar sem seld eru grænmeti, krydd, indverskur sælgæti, vefnaður, silfur og handverk. Þetta er frábær staður til að rölta um í rólegheitum.

Valfrjálst: Gönguferð um Bláu borgina Við bjóðum upp á sérsniðna gönguferð um bláu götur gamla bæjarins í Jodhpur, þar sem áður bjuggu Brahmín-prestar. Húsgöturnar eru bláar sem er vísbending um ríkulega menningararfleifð borgarinnar. Við skoðum göturnar í Nav Chowkia, þar sem stórkostleg Havelí-hús prýða götuna – með höggnum veggjum og útskornum svalagöngum sem gefa innsýn í líf yfirstéttarinnar fyrr á tímum.

Síðan heimsækjum við hið sérkennilega Eloji-hof, tileinkað guði kynorkunnar – óvenjulegt hof sem er hulið innan um þröngu götur.

Áfram þræðum við göturnar, m.a. um hverfi sem gullsmiðir vinna við forna hefðir og móta fíngert skartgripi. Við leitum uppi andlegan frið í forna Kunj-Bihari hofinu, en ljúkum svo ferðinni á iðandi aðalmarkaðnum. Þessi menningarferð er heillandi innlit í sögu og merkilega menningu Jodhpur.

Gisting: sama og sl. nótt.

Eftir morgunverð er tékkað út af hótelinu og ekið til Udaipur. Á leiðinni er stoppað við Ranakpur en hofin í Ranakpur eru yfir 500 ára gömul og mjög vel varðveitt. Enginn annar staður í Rajasthan býður upp á sama andrúmsloft og náttúrufegurð og Ranakpur, því einangrun staðarins eykur töfrana.

Hofin eru einstök bæði í stíl og hönnun. Loftin eru skorin út með fíngerðum blaðaskrautsmunstrum og rúmfræðilegum mynsturum sem minna á blúndur. Hvelfingarnar eru skreyttar með hringlaga röðum og stoðirnar sem tengja botninn við toppinn eru útskornar með myndum af guðum og gyðjum.

Þaðan er svo haldið áfram til Udaipur.

Gisting: Trident hotel Udaipur Máltíðir: Morgunverður og hádegisverður

Við ætlum að hefja daginn með morgungöngu milli þorpa í Aravali fjöllunum og höfum með okkur nesti. Það verður kærkomið að vera út í náttúrunni í fallegu landslaginu.

Við förum til baka á hótelið en síðar um daginn skoðum við Udaipur.

Við heimsækjum City Palace, höllina þar sem Maharana af Mewar á einkabústað – Mewar-konungsættin er sú elsta í Indlandi og titillinn „Maharana“ merkir „konungur konunganna“. Þeir létu af völdum 1949 eftir að lýðveldið Indland var stofnað.

Hallarsamstæðan samanstendur af fjórum aðalhöllum og fjölda minni halla sem mynda glæsilega framhlið sem nær yfir næstum 900 metra og horfir yfir Pichola stöðuvatnið.

Hver viðbót sem hefur verið byggð af arftökum Maharana-sættarinnar hefur verið gerð í samræmi við fyrri byggingar, sem gerir það að verkum að allt virkar sem ein samfelld heild.

Syðsti hluti samstæðunnar, Shiv Niwas Palace, er nú lúxushótel.

Í suðausturhluta samstæðunnar er Shambhu Niwas, einkabústaður konungsfjölskyldunnar, sem ennþá telur nokkra valdamikla einstaklinga sem hafa mikil áhrif í héraðinu, bæði fjáhagslega, menningarlega og í alþjóðlegum málefnum m.a. sem fulltrúar hjá Sameinuðu þjóðunum.

Vestast við vatnið, er Fateh Prakash Palace, sem einnig hefur verið breytt í hótel.

Elsti hluti samstæðunnar er sjálf City Palace, sem var reist á 16. öld.

Við skoðum ýmis einstök listaverk, en þar er m.a. að finna stórkostlegt fánamosaík af páfuglum og röð veggmálverka.

Höllin hýsti áður höfðingja Mewar, en meirihluti hennar hefur verið breytt í safn sem sýnir stórkostleg smámyndamálverk, spegla- og glerlist.

Durbar Hall (Opinberi salurinn) í Fateh Prakash-höllinni er enn notaður við konunglegar athafnir. Þar halda konungsfjölskyldur enn sínar fjölskylduhátíðir og taka á móti erlendum gestum og þjóðhöfðingjum.

Eftir heimsókn í City Palace rölum við um markaðina og basarana í gamla bænum handan hallarinnar til að finna hinn sanna takt borgarinnar.

Við skoðum að lokum Jagdish-hofið, sem er veglega skreytt með fallegum útskurði.

Síðan er haldið á hótel, en um kvöldið er afslappandi sigling inn í sólarlagið á Pichola vatninu.

Frá vatninu er glæsilegt útsýni yfir City Palace, sem teygir sig meðfram austurbakkanum, og á suðurströndinni eru fagrir garðar sem liggja niður að vatninu.

Gisting: sama og sl. nótt

Þá er þeysireið okkar um norðurhéruð Indlands senn á enda, og tími til að leggja af stað til strandarinnar, þar sem við náum að melta það sem fyrir augu okkar hefur borið og slaka aðeins á áður en haldið er heim á leið í íslenska veturinn.

Við tékkum okkur út og höldum út á flugvöll.

Við þurfum að millilenda í Delhi á leið okkar til Goa, en það verður þess virði að fara í þetta ferðalag, því í Goa bíður okkar hvítar strendur, fagurblátt hafið og dásamlegt hótel.

Goa er staðsett við vesturströnd Indlands, á strandsvæði sem kallast Konkan. Þar er mikil náttúrufegurð og fallegri byggingarlist hofa, kirkna og gamalla húsa húsa, hefur Goa orðið staður sem ferðalanga vilja gjarnan að heimsækja og upplifa.

Goa er miklu meira en baðstrandarstaður. Goa er full af ævintýrum og áhugaverðum staðreyndum. Goa býr yfir ríkri menningu, arfleifð og náttúran þar er ákaflega falleg.

Við dveljum í Goa í 5 nætur.

Ef ykkur langar að skoða meira, getur fararstjóri meira en verið tilbúin að skipuleggja fyrir ykkur spennandi dagsferðir, einnig er möguleiki á að spila golf, en þarna nálægt eru margir frábærir golfvellir, en panta þarf fyrirfram.

Í Goa er einungis morgunverður innifalinn

Heimferð hefst, Goa- Delhi-Helsinki-Keflavik.

  Stjörnuferðir starfa undir leyfum og tryggingum Polaris journeys ehf.  Eigandi og framkvæmdastjóri er Hildur Gunnarsdóttir