21 -29. október 2025​

Komdu með til Antalya

Hreyfing, sjálfsstyrking, vellíðan og slökun

Ertu tilbúin að koma með í ógleymanlega ferð þar sem hreyfing, sjálfstyrking og vellíðan sameinast í draumaumhverfi Antalya í Tyrklandi ? Ef þú elskar að stunda hreyfingu og þráir tíma til þess að rækta sjálfa þig andlega og líkamlega þá er þessi ferð fyrir þig og kjörin til að ná sér í orku áður en íslensk veturinn og myrkrið skellur á.

Antalya í október er þægilegur hiti, kjörinn til að stunda æfingar. Við gistum á glæsilegu 5* hóteli, sem er vel staðsett, nálægt strönd og í göngufjarlægð frá miðbæ þar sem finna má fjölbreytt úrvaveitingastaða og kaffihúsa.

Hvað gerir ferðina sérstaka?

Undir leiðsögn Sigrún Fjeldsted þjálfara, ráðgjafa, kennara og markþjálfa leggjum við áherslu á að styrkj bæði andlega og líkamlega heilsu með fjölbreyttri dagskrá sem er hönnuð fyrir konur sem eru nú þegar virkar í hreyfingu.

  • Dagleg styrktarþjálfun, nokkrar hlaupa/gönguferðir og ein ævintýraleg hjólaferð meðfram ströndinni.
  • Uppgötvaðu kraftinn sem í þér býr með daglegri hreyfingu og fyrirlestrum og vinnustofum um sjálfstyrkingu og heilbrigðan lífsstíl.
  • Vinnuhefti með fræðslu og sjálfsskoðun sem leiðir til betri heilsu.

Ekki missa af þessu tækifæri! Sambærilegar ferðir okkar til Króatíu hafa selst hratt upp og færri komist að en vildu.

Þetta er ferð sem veitir þér rými til að styrkja þig í einstöku umhverfi með konum sem deila söm ástríðu og þú.

 

Markmið ferðarinnar

Markmiðið er að skapa rými fyrir konur til að finna kraftinn sem í þeim býr.Þetta verður gert í gegnum daglega hreyfingu og sjálfsstyrkingu undir handleiðslu Sigrúnar Fjeldsted.

Æfingarnar henta öllum sem eru í ágætri þjálfun, en unnið verður með fjölbreyttar styrktaræfingar til a auka brennslu. Göngu- og/eða hlaupaferðir verða hluti af dagskránni, þar sem allir fá áskoranir við sit hæfi. Auk þess verður stuðst við góðar hreyfiteygjur og slökun.

Samhliða hreyfingunni verður unnið með sjálfsstyrkingu, heilsusamlegar lífsvenjur og markmiðasetningu.

Frjáls tími er einnig hluti af dagskránni, þar sem það er hægt að slaka á, njóta góðs félagsskapar og hlaða orkuna fyrir framtíðina.

Ferðin er tilvalin fyrir þær konur sem vilja komast í sitt besta form.

Um Antalya

Antalya er vinsæl ferðamannaborg á suðurströnd Tyrklands við Miðjarðarhafið og er oft kölluð „perla Tyrklands“. Þar búa um 2.7 milljónir manna í borginni og úthverfum hennar. Borgin er þekkt fyrir töfrandi strendur, kristaltært haf og yndislegt veður mestan hluta ársins.


Í gamla bænum, Kaleiçi, má finna söguleg hús, þröngar steinlagðar götur og fornar byggingar frá tímum Rómverja og Ottómana. Þar er einnig Hidirlik-turninn og Hadrianusarhliðin, Nágrennið býður upp á stórkostlega náttúru, svo sem Düden-fossa, Taurus-fjöllin og fornleifasvæði eins og Perge og Aspendos.

Gististaður

Hótel Akra

Fallegt 5-stjörnu hótel við ströndina

Hótel Akra er 5* hótel staðsett í hjarta Antalya. Hótelið er 500 m frá ströndinni í göngufæri við miðbæinn, þar sem er úrval góðra veitingahúsa. Hótelið er í um það bil 3 km fjarlægð frá Terracity verslunarmiðstöðinni og gamla bænum og flugvöllurinn er í um það bil 15 km fjarlægð.

Öll herbergin á Akra eru með svölum með útsýni yfir Miðjarðarhafið eða Tórusfjöllin. Hótelið var allt tekið í gegn 2024 og er herbergin eru innréttuð í nútímalegum stíl sem og aðrir hlutar hótelsins. Á Akra Antalya eru nokkrir veitingastaðir og barir m.a.

Pablito Bistro býður upp á vandaða rétti úr tyrkneskri og alþjóðlegri matargerð, þar á meðal sjávarréttir, nýbakað brauð, pizzur, grillaðir réttir og pastaréttir. Lífræn matvæli og snarl eru einnig í boði.

Asmani Restaurant, sem er staðsettur á 10. hæð hótelsins, býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Bey-fjöllin, Miðjarðarhafið og borgina.

Á hótelinu er yndisleg heilsulind, sem býður meðal annars upp á gufubað, tyrkneskt bað og úrval af snyrti- og nuddmeðferðum

VERÐ

kr 366.000
  • Á mann m.v. tvíbýli
  • kr. 75.000 aukalega fyrir einbýli

Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn

Beint flug með Play til Antalya, 20 kg. taska + lítil handtaska.
Akstur til og frá flugvelli.
7 nætur á 5* Akra hotel, sem var endurnýjað að öllu leyti 2024.
Ríkulegur morgunmatur alla daga.
Dagleg markviss þjálfun og slökun.

Umsagnir

Fararstjóri

Hver er Sigrún Fjeldsted?

Sigrún er fyrrverandi afreksíþróttakona með mikla ástríðu fyrir heilbrigðum lífsstíl. Hún er sálfræðimenntaður markþjálfi, náms- og starfsráðgjafi, kennari, heilsunuddari og þjálfari. Sigrún brennur fyrir því að hjálpa öðrum konum að ná árangri og velferð, bæði andlega og líkamlega.

Með áhuga sem spannar andlega og líkamlega heilsu hefur Sigrún starfað við þjálfun, fræðslu, kennslu og ráðgjöf. Hægt er að fylgjast með henni á Instagram-síðunni @andlegoglikamlegheilsa.

Sigrún leggur áherslu á góða og markvissa hreyfidagskrá ásamt tíma fyrir slökun og sjálfsstyrkingu, til að stuðla að jafnvægi og velmegun.

  Stjörnuferðir starfa undir leyfum og tryggingum Polaris journeys ehf.  Eigandi og framkvæmdastjóri er Hildur Gunnarsdóttir