1.-8. október 2026

Provence: Luberon & Saint-Tropez

Bonjour !

Komið með okkur til Provence í oktober og uppgötvið hið sanna  Suður Frakkland.

Ferð sem skilur eftir sig minningar, nýjar vinkonur og þá tilfinningu sem Frakkar kalla svo fallega C´est la vie !

Til að bóka, hafið samband með tölvupósti: info@stjornuferdir.is

ATH. Takmarkað pláss.

Þessi dásamlega Frakklandsferð verður einstök  og perónuleg, sniðin  fyrir lítinn hóp kvenna sem vilja upplifa Suður Frakkland á annan hátt sem  flestir ferðamenn fara á mis við. Gestgjafinn í þessari ferð,  Arabella Morgan, ólst upp í hjarta Provence. Hún leiðir ykkur að fallegum leynistöðum, heillandi þorpum og upplifunum.

 Október mánuður er einstakur í Suður Frakklandi.  Sveitirnar eru sveipaðar fallegri haustbirtunni, svo samspil lita og ljóss verður ægifagurt.  Lavender akrarnir ilma sem aldrei fyrr  og vínþrúgurnar eru bústnar og  tilbúnar til uppskeru.  Efst upp á  hæðunum í Luberon dal, sitja forn virki,  böðuð í síðdegissólinni.   St.  Tropez er hinn frægi  bær  við fagurblátt hafið, sem eitt sinn fangaði hjarta Brigitte Bardot.  Stemningin er afslöppuð þar sem  að mesta ferðamannatimabilinu er lokið.

 Provence er jafnframt þekkt fyrir eina bestu matarmenningu Frakklands. Við munum njóta dýrindis rétta úr fersku hráefni svæðisins, heimsækja einstaka veitingastaði og upplifa bragðheima sem gleður öll skilningarvit.

Ferðatilögunin

Átta dagar. Tveir ólíkir heimar. Ein ógleymanleg ferð um hjarta Suður-Frakklands.

01. Fimmtudagur 1. október – Frá París til Lourmarin

Ferðin hefst með beinu flugi Icelandair til Parísar, þar sem borgin tekur á móti ykkur með glæsileikanum sem einkennir París.  Frá  Gare de Lyon-lestarstöðinni er haldið  suður með hraðlestinni TGV.  Þið fáið meðferðis fallega  nestiskörfu til að njóta  á meðan franska landslagið líður hjá fyrir utan gluggann.

Við komuna til Aix-en-Provence tekur   bílstjóri  á móti hópnum og ekur ykkur um sveitir Luberon-héraðsins til Lourmarin. Um kvöldið komið þið ykkur fyrir í einu fallegasta þorpi Provence-héraðsins, þar sem kvöldverður á veitingastaðnum Bacheto markar upphafið að sönnu ævintýri..

Heimili ykkar fyrstu fjórar næturnar

Le Moulin de Lourmarin★★★★

Fallega endurgerð ólífumylla frá 18. öld í hjarta Lourmarin, á einum eftirsóttasta stað í öllu Provence. Stíllinn á hótelinu  er ekta Province, m.a. glæsileg terrakottagólf og hinn margrómaði veitingastaður Bacheto er staðsettur þarna.  Það  er alveg einstakt andrúmsloft  og stemmning á þessu fallega hóteli. 

02. Föstudagur 2. október – Markaðsdagur í Lourmarin

Þegar þið stígið út fyrir hótelið þennan dag  er hinn frægi föstudagsmarkaður þorpsins þegar í fullum gangi.  Hinn goðsagnakenndi föstudagsmarkaður Lourmarin fyllir þorpið frá því snemma morguns með sölubásum sem bjóða upp á  osta, hunang, leirmuni og ferskt hráefni úr héraðinu.

Síðdegis heimsækir hópurinn verkstæði þar sem ljósakrónurnar í Versölum eru framleiddar – einstakt og lítt þekkt handverk sem lifir enn góðu lífi í Provence. Að því loknu er farið í heimsókn í  ólífuolíumyllu. Tímasetningin er fullkomin, þar sem olífuuppskeran er rétt að hefast !

 

03. Laugardagur 3. október – Gordes, Sénanque og Château de Mille

Að morgunverði loknum  er  haldið  I heimsókn í  þorpið Gordes upp í hæðunum,  þar sem  Cistercian-klaustrið Sénanque er staðsett, en það  var stofnað á 12. öld og telst meðal merkustu bygginga Frakklands.

Hádegisverður er snæddur með stórkostlegu útsýni yfir Luberon-dalinn.

Síðdegis og fram á kvöld dvelur hópurinn á Château de Mille, vínbúgarði frá 13. öld með sögu sem nær aftur til tíma páfanna í Avignon. Þetta verður einkaheimsókn fyrir ykkur, og þið njótið  vínsmökkunar og kvöldverðar í hinum fornu og hvelfdu vínkjöllurum búgarðsins.

 

04. Sunnudagur 4. október – L’Isle-sur-la-Sorgue

Snemma morguns er haldið á hinn heimsfræga antíkmarkað í L’Isle-sur-la-Sorgue, þar sem um 300 söluaðilar raða sér upp meðfram bökkum Sorgue-árinnar og auðvelt er að gleyma sér þar  við að skoða gersemarnar.

Með hópnum þennan dag verður Eva Dögg, íslendingur sem hefur gert suður-Frakkland að heimili sínu. Hún er sérfræðingur í vellíðan og húðumhirðu, auk þess að vera ástríðufullur unnandi antíkgripa og þekkir markaðinn eins og lófann á sér.

Hádegisverður er snæddur  á markaðnum , þar sem matargerðin er jafn einstök og þeir munir sem þar er  hægt er að finna.

Síðdegis leiðir Eva Dögg námskeið í húðumhirðu þar sem notaðar eru hágæða snyrtivörur frá Provence – falleg og óvænt upplifun sem verður án efa einn af hápunktum dagsins.

Þegar sólin lækkar á lofti er haldið aftur til Lourmarin, þar sem hópurinn nýtur pétanque-leiks á torginu með svalandi fordrykk.

 

05. Mánudagur 5. október – Frá Aix-en-Provence til Saint-Tropez

Dagurinn hefst með heimsókn í vinnustofu Cézanne í Aix-en-Provence, þar sem hann starfaði um árabil.

Í kjölfarið tekur við skapandi vinnustofa í anda meistarans og síðan gefst tími til að njóta hádegisverðar á eigin vegum við hina glæsilegu Cours Mirabeau-breiðgötu.

Síðdegis er frjáls tími til að kanna borgina áður en hópurinn heldur suður til St Tropez.

.

Heimili ykkar næstu þrjár næturnar

La Ferme d’Augustin ★★★★

La Ferme d’Augustin í Ramatuelle er eitt af fáum fjölskyldureknum  hótelunum á svæðinu. Þetta fallega hótel  hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá fimmta áratug síðustu aldar og er aðeins tveggja mínútna göngufjarlægð frá Plage Tahiti-ströndinni.

Á hótelinu er meðal annars balneó-meðferðarlaug, hinn margrómaði veitingastaður La Table d’Augustin og einkarekinn rafknúinn Jaguar-bíll sem ekur gestum til Saint-Tropez á kvöldin

Hótelið býður upp á ókeypis skutluþjónustu til Saint-Tropez sem hægt er að bóka í móttökunni eða hjá bílstjórum okkar. Á kvöldin er einnig auðvelt að fá leigubíl. Fjölmargir veitingastaðir eru á leiðinni að ströndinni

 

06. Þriðjudagur 6. október – Saint-Tropez

Gönguferð með leiðsögn um þröng stræti gamla bæjarins,  þar sem farið  er í fótspor Brigitte Bardot. Gengið verður  framhjá La Ponche-hverfinu, um Place des Lices-torgið og meðfram höfninni þar sem glæsihýsi Belle Époque-tímans glitra í októbersólinni.

Síðdegis er frjáls tími til að synda, skoða bæinn eða einfaldlega setjast niður með glas af eðalvíni og fylgjast með lífinu í Saint-Tropez.

 

07. Miðvikudagur 7. október – Plage Tahiti og Club 55

Morguninn er algjörlega ykkar: Sofa út, njóta morgunverðar á veröndinni og ganga niður að sjónum.

Síðdegis heldur hópurinn á Club 55, hinn goðsagnakennda strandklúbb á Pampelonne-ströndinni sem hefur verið í hjarta Saint-Tropez-lífsins frá fimmta áratugnum.

Þar bíður síðbúinn og eftirminnilegur hádegisverður sem teygir sig á fallegan hátt inn í gylltar síðdegisstundir dagsins. Fáir staðir í heiminum eiga sér hliðstæðu við Club 55 og þetta er fullkomin leið til að ljúka ferðinni.

 

08. Fimmtudagur 8. október – Heimferð um Nice

Morgunverður, farangurinn settur í bílana og síðan er stuttur  akstur meðfram ströndinni til Nice Côte d’Azur-flugvallar.

Icelandair flýgur ykkur heim til Keflavíkur um kvöldið – með Provence í hjartanu.

Verð: Kr: 829.000  á mann   í tvíbýli    

Arabella, Jón Páll og Ásta fylgja ykkur allan tímann — frá Keflavík til Rivíeru og heim aftur.

7.nóv

06:20 Komið til Bangkok. Hópurinn fer beint í morgunmat á hótelinu, við  fáum herbergin og getum hvílt okkur og frískað upp á okkur eftir langt ferðalag.

13:30 Hópurinn hittist í anddyri og  haldið í skoðunarferð um borgina, m.a. sjáum við  fyrrum konungshöllina og hin þekktu hof m.a. risa líkneskið af Búdda. Við tekur svo bátsferð til hins fallega  Arun hofs. Að lokum er blómamarkaðurinn heimsóttur, sem er afar líflegur og þar má finna blóm sem við kunnum ekki að nefna !

Við komum aftur á hótelið fyrir kvöldmat og hver og einn getur hagað kvöldinu að eigin vild.

Morgunverður innifalinn.

8.nóv

09:00 Hópurinn hittist í anddyri og í dag er ferðinni heitið aðeins út fyrir borgina.

Við förum á hinn fræga járnbrautarmarkað, Maeklong Railway, þar sem kaupmenn þurfa að tæma bása sína í einum grænum í hvert skipti sem það kemur lest akandi eftir járnbrautarteinunum.  

Síðan er farið á mótorbát framhjá ávaxtaekrum á leið okkar til Damnoen Saduak, hinum fljótlandi markaði. VIð dólum á litlum bátum um þennan líflega og litskrúðuga markað og hægt er að versla við bátafólkið ef áhugi er fyrir hendi

Við komum til baka fyrir kvöldverð.

Morgun- og hádegisverður innifalinn.

9. nóv

09:30 Hópurinn hittist í anddyri og haldið er út á flugvöll.

12:20 Flug frá Bangkok til Hanoi með Bangkok airlines.

14:15 Lent á Noi Bai flugvellinum þar sem leiðsögumaður okkar tekur á móti okkur.

Við höldum á hótel og tékkum okkur inn, og þeir sem vilja geta farið í dásamlegt nudd.

18:00 Water Puppet Show, leikbrúður í vatni sem fara yfir sögu Vietnam.  Þetta er þjóðlegt og vel þess virði að eyða klukkustund á þessari sýning.

Eftir sýninguna, er kvöldverður á vietnömskum  veitingastað, þar sem við förum í sannkallað ferðalag fyrir bragðlaukana.

Morgun- og kvöldverður innifalinn.

10. nóv

09:00 Leiðsögumaður hittir hópinn í anddyri hótelsins og farið verður í skoðunarferð um Hanoi. 

Hanoi hefur verið höfuðborg Víetnam í nær 1000 ár og er jafnframt vagga menningar landsins.
Hvert ættveldi sem ríkt hefur hverju sinni, hefur skilið eftir sína menningararfleið. Því miður hefur
mikið glatast í tímans rás, þá aðallega vegna stríðsátaka. Engu að síður er enn að finna áhugaverð
og sögufræg minnismerki, einkum í miðborg Hanoi. 

Meðal áhugaverðra staða sem verða heimsóttir, er safn um sögu ættbálka í Vietnam. Það er athyglisvert að í landinu eru skilgreindir 54 ólíkir þjóðernishópar.

Hádegisverður verður að sjálfsögðu ljúffengur.

Eftir hádegið er farið í um klukkustundar langan hjólatúr um gamla hluta borgarinnar. Mjög
algengur ferðamáti er hjólabíll þar sem farþegar sitja og eigandi hjólabílsins hjólar. Við eigum erfitt með að horfa uppá slíkt og finnum til með hjólagörpunum, en þannig er það bara þarna og
munum við prófa það. Túrinn um Hanoi lýkur við hið friðsæla Hoan Kiem stöðuvatn.

16:00 Boðið upp á „high
tea“ á huggulegu kaffihúsi.

Eftir kaffið er frjáls tími og kvöldmatur að eigin vali.  Þeir sem vilja geta farið í matargöngu með guide (valfrjálst,  aukakostnaður)

Gisting: Sama hótel og s.l. nótt.

Morgun- og hádegisverður innifalinn.

11.nóv

08:00 Í dag tökum við daginn snemma því það er um 3.5 klst keyrsla að Halong Bay þar sem við munum stíga  um borð í glæsilega júnku, sem mun verða okkar dvalarstaður næstu tvo daga.

Á leiðinni til Halong Bay keyrum við í gegnum frjósamar sveitir meðfram Rauðá og  ber ýmislegt
framandi fyrir augu, m.a. endalausir hrísgrjónaakrar og lítil þorp þar sem fólk sinnir sínum
hversdagslegu störfum. 

11:00 komið er til  Halong borgar og þar er stigið um borð í lítinn bát, sem siglir með hópinn í skipið sem staðsett er úti á flóanum.  Þegar þangað er komið verður farið yfir öryggisatriði skipsins og dagskrá kynnt farþegunum og síðan er borinn fram ljúffengur hádegisverður.

Siglt er meðfram aragrúa af eyjum og er landslagið fagurt og óvenjulegt. Kalksteinsklettarnir og
smáeyjarnar rísa upp úr sjónum eins og tröllatennur, eða drekatennur eins og Vietnamar segja.

14:30 Luon hellirinn.  Þið hafið val um að láta sigla með ykkur í hellinn í litlum bambusbát eða fara sjálf  á kajak til að skoða inni í hellinum.

16:00  Staldrað er  við Titov eyju, þar sem hægt er að baða sig í túrkis bláu vatninu eða klifra upp á topp og dást af útsýninu sem þar er.

16:30 Frjáls tími um borð. Boðið er upp á síðdegishressingu, og gott er að  slappa aðeins  af eða fara í spa og láta dekra við sig.

17:30  Þeir sem vilja, geta aðstoðað kokkinn við að búa til vorrúllur og það er svo  „happy hour“ fram að kvöldmat.

19:00 Kvöldverður og lifandi músík, (það er  dresskóði í kvöldmatinn, formal/semi formal/smart casual)

Gisting: Ambassador cruise 

Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.

12.nóv 

06:30 Fyrir árrisula hefst morguninn með Tai Chi tíma uppi á dekki. 

07:00 Borinn er fram léttur morgunverður, kaffi, te og nýbakað brauð.

07:30  Heimsókn í  Sung Sot hellinn, sem er stærsti hellirinn á þessum slóðum og þar inni er að finna ótrúlega dropasteina. 

08:30 Nú fáum við almennilegan morgunverð á veitingastaðnum meðan báturinn siglir um.

09:30  Hvert herbergi gerir upp  reikninginn vegna drykkja og spa þjónustu ef einhver er.

10:15  Komið er í land en þar bíður rútan og leiðsögumaður okkar og við keyrum sem leið liggur á flugvöllinn, 

18:00 Brottför flugs Vietnam airlines til Saigon ( Ho Chi Minh City)

20:10 komið til Saigon, og rúta fer með okkur beint á hótel,  þar sem okkur bíður Dimsum  hlaðborð.

Í Saigon er gríðarlega mikil umferð, og þar er mikil hjólreiða-og mótorhjólahefð og hver sem þangað kemur áttar sig ekki á því hvernig umferðin getur yfirleitt gengið snuðrulaust fyrir sig. 

Gisting: Hotel Vela Saigon

Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.

13.nóv

09:00 Eftir morgunmat er haldið áleiðis til Tay NInh, sem er í um 100 km fjárlægð frá borginni og það
verður vafalaust ýmislegt framandi sem fyrir augu ber á leiðinni.

12:00 Við borðum hádegisverð á hefðbundnum veitingastað á leiðinni til Cu Chi.

Cu Chi eru ótrúleg neðanjarðargöng eða öllu heldur gangnakerfi, sem voru byggð af
andspyrnumönnum í Vietnam þegar þjóðin barðist fyrir sjálfstæði sinu á sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar. 

Þegar við komum á hótelið seinnipartinn, er frjáls tími og og hægt að taka lífinu rólega.  Við mælum með sundlauginni á efstu hæð þaðan sem  útsýni er  allan hringinn !

Gisting: sama og s.l. nótt

Morgun-, hádegisverður innifalinn.

14. nóv

09:00  Eftir morgunmat skoðum við þessa stærstu borg Vietnam, en þar búa um 7 milljón manna. Saigon  er svo full af mótsögnum. Á götuhorni sérðu ungan mann í jakkafötum að tala í farsímann sinn og á sama horni er kannski ung kona sem situr á hækjum sér með barn á bakinu og eldar eitthvað í potti sem hún selur vegfarendum. 

Borgin er hávaðasöm og þar virðist vera mikið óskipulag, það eru vestrænir barir og kaffihús í bland við gamaldags víetnamska götuveitingastaði og það er hrópað, kallað og flautað. Einhver gaf það ráð til að komast yfir götu, væri bara að láta sig vaða út á umferðargötuna án þess að líta hvorki til hægri né vinstri og svo kemur það bara í ljós hvort þú komist yfir eða ekki. Örlögin eru búin að ákveða það hvort sem er! Götuljós eru jú til staðar á gatnamótum, en fátítt er að tekið sé mark á þeim. 

Það eru nokkrir staðir sem er gaman er að skoða í borginni, eins og Thien Hau pagodan og Notre Dam dómkirkjan og margir  fallegir garðar.Við stoppum til að sjá hefðbundna trúarathöfn við Cao Dai Holy See. Þeir sem taka þátt í athöfninni eru klæddir í litríkar skikkjur. Þessi trúarathöfn er svolítið sérstök því hún er afar forvitnileg blanda af Konfúsiusisma, Taosima, Buddisma og kristni. 

12:30  Hádegisverður 

Eftir hádegi heimsækjum við stríðsminjasafn þar sem sjá má sláandi staðreyndir um stríðið sem geisaði milli Vietnam og Bandaríkjamanna 1959-1975 og hafði skelfilegri afleiðingar en orð fá lýst. Rétt er að vara viðkvæma við safninu og þeir sem ekki treysta sér, geta sest á kaffihús og upplifað ys og þys borgarinnar. 

Þegar degi fer að halla, tökum við flug til Siem Reap í Kambódiu. 

19:20 Brottför flugs VN 815 til Siem Reap Kambódíu

20:35 Komið til Siem Reap. 

Ath. við komu til Kambódíu þarf að framvísa passamynd og 30 USD á mann til að fá visa inn í landið við komu. 

Kvöldverður  við komu – vestrænn matseðill. 

Gisting : Borat Angkor Resort 

Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.

15. nóv

09:00 Brottför frá hóteli.
Þar sem ekki er leyfilegt að aka um á rútu í þjóðgarðinum, fáum við litla bíla, eða svokölluð Tuk-tuk
til að fara með okkur í skoðunarferð um hina stórfenglegu fornu borg, Angkor Thom sem nær yfir 10 ferkílómetra
svæði.

Hluti af þessum miklu mannvirkjum hafa orðið undir í baráttunni við náttúruöflin, en krafturinn
í frumskóginum sem umlykur hofin er gríðarlegur og sveipar hofin dulúðlegum blæ. Frakkar hafa
tekið að sér að fjármagna hreinsun umhverfis hofin og fyrir fornleifafræðinga er svæðið ómetanlegur
fjársjóður.

Hádegisverð snæðum við á veitingastað í þjóðgarðinum.

Eftir hádegi höldum við áfram ferð okkar og núna er það hið heimsfræga hof Angkor Wat, sem talið er
eitt af 7 undrum veraldar, byggt á árunum 1110 – 1150.  Þeir sem treysta sér í meiri göngu, geta í lok dags, gengið upp á hæsta punkt borgarinnar Phnom Bakheng til að sjá sólarlagið.

20:00 Kvöldverður er snæddur á veitingastað þar sem er boðið upp á ljúffenga Kambódiska rétti.
Gisting: sama hótel og sl. nótt

Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.

16. nóv

05:00 fara sem hafa viljann og geta vaknað, en svo árla morguns er ferð til Angkor Wat til að sjá
sólarupprásina, sem er stórkostleg sjón. Það er svo farið til baka á hótel til að fá sér staðgóðan
morgunverð.

09:00 hefst eiginleg dagsskrá dagsins.  Í dag sjáum bleika hofið, Banteay Srey, um 40 km frá Siem Reap, en þar er að finna fegurstu sýnishorn klassískrar listar í Kambódíu. Við heimsækjum þorpið Preah Dak og heimilsfólk á bóndabæ, þar sem við kynnumst daglegu lífi heimamanna, skoðum handverk og ýmsa heimaframleiðslu á kryddi, sápu og ilmvötnum, allt framleitt úr 100% náttúrulegum efnum.

Við smökkum Kambódískar hrisgrjónanúðlur – sem ku vera þær bestu í heimi og þarna gefast mörg
tækifæri til að smakka ýmiskonar spennandi snarl að eigin vali og á eigin kostnað.

Seinnipart dagsins er hópurinn frjáls ferða sinna, 

Gisting: Sama hótel og s.l. nótt.

Morgun-, hádegisverður innifalinn.

17.nóv

08:30 Í dag er haldið að Tonal Sap sem er gríðarstórt stöðuvatn sem hefur verið afar mikilvægt til
fæðuöflunar í Kambodíu. Þar standa heilu þorpin á allt að 10 m háum stultum upp úr vatninu, því
vatnsborðið breytist eftir árstíðum og margir sem þarna búa hafa aldrei stigið fæti á meginlandið.

Hádegisverður er snæddur á kambódískum veitingastað.

Eftir hádegi heimsækjum við silkiormaræktun og kynnumst silkiframleiðslu eins og hún hefur verið
nánast óbreytt um aldir og sjáum hvernig silkiormar búa til hið verðmæta silki.

Eftir ferðina er frjáls tími og ef allt gengur upp, verðum  við komin tímalega á hótelið til að slaka á við sundlaugina eða  skoða sig um í miðbænum.

20:00 Aspara leikhús. Kvöldverðurinn er snæddur undir kambódískum dansi og söng.
Gisting: sama hótel og s.l. nótt

Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.

18. nóv

08:30 Við leggjum í hann til höfuðborgarinnar, Phnom Penh í fyrra fallinu því vIð viljum ná sem mestu
út úr deginum. Alls er um 6 tíma keyrsla, en við munum stoppa nokkrum sinnum á leiðinni.

Við skoðum gömlu brúnna við Kampond Kdei, og  við stoppum m.a. í  þorpi þar sem hefð er fyrir því að veiða skordýr, m.a.  tarantúlur, þessar fremur ófrýnilegu köngulær til matar. Þeim huguðustu býðst smakka á þessu Kambódíska góðgæti, djúpsteiktri tarantúlu og engisprettum sem þykir einstakt
lostæti á þessum slóðum. En sennilega er þessi fæða tilkomin vegna fæðuskorts á sínum tíma, en
hefur engu að síður orðið að matarhefð.

Gefinn er kostur á að kaupa sér hádegissnarl á leiðinni ( á eigin kostnað)

Við komu til Phnom Penh er frjáls tími, en förum svo í kvöldgöngu meðfram Mekong ánni og borðum  kvöldverð um borð í bát sem siglir á ánni.

Gisting : Raffes Le Royal

Morgun- og kvöldverður innifalinn.

19.nóv

09:00 Við hefjum daginn á skoða helstu byggingar og hof borgarinnar, Silfur Pagóðuna og konungshöllina og gimsteina prýdd Búdda líkneski. Fyrrum fangelsið Toulsleng S21, öðru nafni Killing Fields, er í dag safn um einræðisstjórn Pol Pot, 1975-1979, en undir hans ógnarstjórn voru myrtar meira en 3,2 milljónir borgara og var menntafólk nánast þurrkað út. Við hittum fólk sem ólst upp við þessar skelfingar og segir okkur sögu sína. Á þessum tíma áttu sér stað fjöldamorð sem eiga sér varla hliðstæðu í sögunni.

Hádegisverður 

Eftir hádegi er boðið upp á ferð á rússneska markaðinn, eða slaka á við sundlaugina á hótelinu.

Ef ykkur langar á markaðinn er auðvitað gaman að  gramsa þar. Verið þó gætin, því mikið er um falsaða vöru, sérstaklega skartgripi. Góður  og viðurkenndur siður er að þjarka um verð, en ekki þarf að taka fram að við verðum alltaf að sýna fyllstu kurteisi, því það er ákveðin list sem felst í því að prútta fallega.

Kvöldverður á sérlega skemmtilegum stað sem býður upp á matreiðslu eins og við erum vön.

Gisting: sama hótel og s.l.nótt.

Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.

20.nóv

07:30 hópurinn er sóttur  á hótelið og keyrður út á flugvöll
10:30 Brottför flugs með Bangkok airlines til Bangkok
11:45 Komið til Bangkok og þar sem tekið er á móti hópnum og keyrt er síðan 1 klst og 30 mín á hotel, sem er á Jomtien
Beach, Pattaya, Andaz by Hyatt

Pizzuhlaðborð bíður okkar við komu.  

Á þessu  dásamlega hóteli, dveljum við í góðu yfirlæti til 11. apríl. Á hótelinu eru 5 mismunandi veitingastaðir, sumir fínni, en aðrir afslappaðir, en maturinn er fyrsta flokks.

Morgunmatur er innifalinn, en aðrar máltíðir eru á eiginn kostnað, fyrir utan pizzurnar við komu.

Ef ykkur langar að skoða umhverfið eða skreppa til Pattaya eða í golf , er hótelið meira en tilbúið að aðstoða okkur við að skipuleggja slíkt og fararstjóri verður líka innan handar við að finna út úr því.

Morgun-, hádegisverður innifalinn.

21-23. nóv 

Sól, sæla og slökun

Morgunverður innifalinn.

24.nóv

Við njótum þess að vera á hótelinu fyrripartinn en  leggjum af stað til Bangkok seinnipartinn. Við hæfi er að kveðja Asíu formlega og því stoppum við á einum af mörgum glæsilegum þakbörum í
Bangkok.

20:00 Haldið út á flugvöll

Morgunverður innifalinn.

Kveðjukokteill.

Suður Frakkland

1.-8. október 2026
kr 829.000
  • Á mann m.v. tvíbýli

Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn

  • Flug með Icelandair: Reykjavík – París og Nice – Keflavík
  • TGV-hraðlest á fyrsta farrými frá París til Aix-en-Provence
  • Akstur frá Aix-en-Provence til Lourmarin við komu
  • Akstur alla 8 dagana
  • 4 nætur á Le Moulin de Lourmarin í tveggja manna herbergi
  • 3 nætur á La Ferme d’Augustin í Ramatuelle í tveggja manna herbergi
  • Allar heimsóknir, vinnustofur og afþreying samkvæmt dagskrá
  • kvöldverður á Bacheto
  • Vínsmökkun og kvöldverður á Château de Mille
  • Leiðsögn um Saint-Tropez
  • Síðbúinn hádegisverður og síðdegi á Club 55 í Pampelonne
  • Ekki innifalið í verði

    • Sum vín og drykkir eru innifalin í kvöldverðum og vinnustofum sem skipulagðar eru af ferðinni. Aðrir drykkir greiðast sér.
    • Máltíðir á frjálsum kvöldum og hádegisverðir á frjálsum dögum
    • Leigubílar til Saint-Tropez á kvöldin
    • Valfrjálsar heilsulindarmeðferðir á La Ferme d’Augustin
    • Persónuleg innkaup
    • Ferðatryggingar

Fararstjórn

Arabella Morgan GESTGJAFI · FARASTJÓRI · HUGMYNDASMIÐUR   Arabella ólst upp í Luberon — hún þekkir  þorpin í Provance eins og lófann á sér;  eins og  einungis sá sem er þar borinn og barnfæddur gerir. Hún er menntuð í ferðamálafræði og hefur  lengst af starfað við ferðaþjónustu. Á hverju ári fylgir hún hópum bandarískra auðmanna á ýmsa áfangastaði í Evrópu í leit að einstökum upplifunum. Hún rekur hinn vinsæla Underground Supper Club í Reykjavík, þar sem undirstaðan er framúrskarandi hráefni og sú trú að matarborðið sé hjarta lífsins. Sá sami andi svífur yfir vötnum hvern einasta dag þessarar ferðar.

Ásta Birna Hauksdóttir –FERÐASKIPULEGGJANDI – FARARSTJÓRI – LÍFSKÚNSTNER

Ásta býr yfir víðtækri og dýrmætri reynslu í ferða- og fluggeiranum. Hún hefur starfað í ferðabransanum í yfir 10 ár, en þar áður byggði hún upp sterkan grunn með meira en 20 ára starfsferli í flugiðnaðinum. Ásta hefur búið og starfað víðs vegar um heiminn, meðal annars í Asíu, Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi alþjóðlega reynsla hefur gefið henni djúpan skilning á ólíkum menningarheimum og styrkt hæfni hennar í samskiptum og þjónustu og nýtir hún alla  þessa reynslu með að sjá um einstakar ferðir sem boðið er uppá  hjá PolarisJourneys/Stjörnuferðum.  Ferðalög eru hennar helsta ástríða og hún elskar að uppgötva nýja staði,  kynnast fólki og menningu og nýtur þess að miðla þeirri reynslu áfram.

 

Jón Páll   Halldórsson – AÐSTOÐARFARASTJÓRI – LISTAMAÐUR – HÖNNUÐUR.

Jón Páll hefur búið  stóran hluta lífs síns við strendur Miðjarðarhafs. Alla hans tíð hefur ferðaþráin drifið hann frá einu heimshorni til annars. Áhugi hans á  listum, arkitektúr, sögu og menningu var stór þáttur í mótun þessarar ferðar. Hann er veraldarvanur rómantíkus !

Fararstjóri:

Ingibjörg Lárusdóttir

  Stjörnuferðir starfa undir leyfum og tryggingum Polaris journeys ehf.  Eigandi og framkvæmdastjóri er Hildur Gunnarsdóttir