11.-18. október 2026
Njótum þess besta sem Sikiley hefur uppá að bjóða!












Gististaðir
Þetta hótel er staðsett í hjarta Palermo. Það er steinsnar frá hinni stórfenglegu dómkirkju og hinu fræga Via Maqueda og í göngufæri við frábær veitingahús og kaffihús. Hótelið var upprunalega íbúðarhús aðalsmanna. Húsið var allt gert upp árið 2003 þar sem leitast var við að varðveita íburðarmikinn byggingastíl upprunalegu byggingarinnar.
Hótelið er staðsett við ströndina og tengist miðbæ Taormina með togbrautarvagni. Gaman er að rölta um miðbæinn, enda eru þar frábær veitinga-og kaffihús og mannlífið líflegt.
Öll herbergin og útisundlaugin eru með útsýni yfir Miðjarðarhafið.
Ferðalýsing
11. okt
Koma til Palermo
Við lendum í Palermo og ökum á hótelið í u.þ.b. 40 mínútur, Eftir innritun gefst tími til að slaka á eða taka fyrsta göngutúrinn um næsta nágrenni og finna stemninguna í þessari líflegu höfuðborg Sikileyjar.
Gisting: 4* Eurostar Centrale Palace
Hótelið er glæsilegt 4* hótel í hjarta Palermo, staðsett í sögulegri 18. aldar höll við aðalgötu miðbæjarins. Það sameinar klassíska sikileyska byggingarlist og nútímaþægindi í notalegu umhverfi. Á þakverönd hótelsins er veitingastaður og bar með fallegu útsýni yfir borgina. Frábær staðsetning gerir gestum kleift að ganga að helstu kennileitum, verslunum og veitingastöðum borgarinnar.
12. okt
Borgarganga í Palermo, götumatur og saga mafíunnar
Dagurinn hefst á leiðsögn um helstu kennileiti Palermo. Við röltum um götur miðborgarinnar og fram hjá stórbrotnu Teatro Massimo og upplifum strax hina fjölbreyttu og líflegu menningu sem ríkir í borginni.
Við höldum áfram og heimsækjum einn af hefðbundnum götumörkuðum borgarinnar, svo sem Mercato del Capo eða La Vucciria, þar sem litir, kliður og ilmur segja sögu daglegs lífs á Sikiley. Þar smökkum við ekta sikileyskan götumat– arancine, panelle, crocchè og nýbakað sfincione – og kynnumst bragðheimi eyjunnar af eigin raun.
Seinnipartinn fær dagurinn dýpri merkingu þegar gengið með leiðsögumanni um staði í miðborginni sem tengjast mafíunni. Við heyrum sögur þeirra sem stóðu gegn skipulagðri glæpastarfsemi mafíunnar.
Í þessari göngu fáum við betri skilning á því hvernig mafían mótaði borgina – og hvernig andófshreyfingin umbreytti að lokum sjálfsmynd mafíunnar og samfélagi hennar
Þessi heilsdagsganga sameinar bragð, menningu og sögu Palermo í gegnum aldirnar.
Sama gisting og sl. nótt.
M, götusmakk yfir daginn
13.okt
Piana degli Albanesi og cannolo
Við keyrum upp í fjalllendið að Piana degli Albanesi (2–2,5 klst. akstur yfir daginn).
Gengið er um víðáttumiklar hásléttur, grýtt landslag og hrífumst af útsýningu yfir vatnið og fjallgarðinn.
Vegalengd: 8 km / Hækkun: ca. 440 m
Eftir gönguna skoðum við þorpið Piana degli Albanesi sem er þekkt fyrir arbëresh-menningu sína, þ.e. arbëresh vísar til menningararfs albanskra innflytjenda sem settust að á Suður-Ítalíu á 15. öld eftir innrásir Tyrkja á Balkanskaga. Það er sannarlega forvitnilegt hvernig býsanskar trúarhefðir og albanska tungumálið hafa varðveist í þessu þorpi.
Að lokum fáum við okkur ferskt sikileyskt cannolo – fullkomin endalok á göngudeginum.
Sama gisting og sl.nótt.
14. Okt
Frjáls dagur
Dagurinn er frjáls til að njóta safna, verslana, kaffihúsa eða einfaldlega slaka á og jafnvel kíkja á Mondello ströndina sem er í um 10-15 min akstursfjarlægð frá Palermo.
Sama gisting og sl. nótt
15. Okt
Cefalù og Taormina
Við keyrum austur á bóginn (4,5–5 klst. með stoppum) og heimsækjum strandbæinn Cefalù.
Við göngum upp á Rocca-hæðina þar sem útsýnið yfir bæinn og strandlengjuna er stórkostlegt. Eftir gönguna röltum við um þröngar götur gamla bæjarins og heimsækjum hina glæsilegu Cefalù Cathedral, eina helstu gersemi sikileyskrar byggingarlistar.
Að lokum höldum við áfram til Taormina
Vegalengd: 5 km (+ ganga í bænum) / Hækkun: ca. 230 m
Gisting: 4*Hotel Panoramica í Taormina.
Hótelið er glæsilegt og nútímalegt hótel í strandhverfinu Mazzarò í Taormina. Það stendur beint á móti fallegu víkinni Isola Bella og býður upp á stórbrotið sjávarútsýni. Á þakinu er sundlaug og sólverönd með útsýni yfir Jónahafið. Kláfferja (cable car) er í næsta nágrenni og tengir hótelið við gamla miðbæ Taormina á nokkrum mínútum.
16. okt
Castelmoa
Dagurinn hefst í fallegu Taormina þar sem við göngum hina sögulegu Saracena-stíg upp til þorpsins Castelmola.
Leiðin liggur um grýttar tröppur og ilmandi Miðjarðarhafsgróður.
Útsýnið til Etnu, Taormina og Jónahafsströndina er stórbrotið og þessi virði að ganga þar upp.
Í Castelmola smökkum á hinu fræga möndluvíni áður en við göngum til baka eftir fallegri og rólegri leið.
Vegalengd: 6 km / Hækkun: ca. 400 m
Sama gisting og sl. nótt.
17. 1okt
Hlíðar Etnu og vínsmökkun
Við höldum að eldfjallinu Etnu, sem hefur verið ansi duglegt við að láta vita af sér í gegnum árin. Við göngum hina fögru og einstöku leið Schiena dell’Asino með útsýni yfir hið magnaða Valle del Bove.
Svört hraunbreiða mætir litríkum gróðri og fallegt útsýni er yfir Jónahafið. Gangan er létt og aðgengileg sem gefur einstaka innsýn í eldfjallaumhverfi Sikileyjar.
Eftir gönguna heimsækjum við víngerð og njótum vínsmökkunar með léttum veitingum.
Vegalengd: 5 km / Hækkun: ca. 220 m
Akstur: 3–3,5 klst. yfir daginn
Sama gisting og s.l. nótt
18. okt
Heimferð
Brottför frá Taormina og akstur á flugvöll í Catania þar sem við kveðjum fallegu Sikiley með trega og höldum heim á leið.
VERÐ
-
kr. 75.000 aukalega fyrir einbýli
Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn
Innifalið:
Flug frá Islandi með millilendingu í Róm
Gisting í 7 nætur með morgunmat
Allur akstur, aðgangur og ferðir skv. ferðalýsingu
Íslensk fararstjórn
Staðarleiðsögumenn
