6.-25. nóv 2026
Indókína
Skaginn austan við Indland og vestan við Kína heitir Indokína. Þar eru löndin Vietnam, Kambódía og Laos, og stundum er Thailand talið með.
Við höfum farið með hóp norður Thailand, til Laos og niður Mekong fljótið, þaðan til Vietnam og Kambódíu sem var stórkostleg 3ja vikna ferð, sannkallað ævintýri fyrir öll skilningarvitin, en núna s.l. 2 ár hefur ferðin legið til Thailands, Vietnam og Kambódíu.
Stór hluti þessara landa er enn því sem næst ósnortinn af vestrænni menningu, en þó er hægt að finna ekta frönsk bakarí í þröngri götu, eða snickers súkkulaði milli núðlanna í búðarborðinu. En alls staðar er þó vel tekið á móti ferðamönnum og víða má finna frábær hótel, veitingahús og þjónustan er alls staðar til fyrirmyndar.
Víetnam og Kambódía hafa sérstöðu að því leiti að þar var óhugnanlegur stríðsrekstur í 15 ár, fyrir og eftir 1970, sem var mikil blóðtaka af vinnufæru fólki, arfleið og menningu. En engu að síður, það er stutt í velvild og bros og yndislegt að heimsækja þessi lönd sem eru svo friðsæl í dag og fólk brosleitt og rólegt.
Angkor Wat i Kambódíu, vatnamarkaðir í Bangkok og brjálaða umferðin í Ho Chi Minh borg í Víetnam, dásamlegur matur og fallegar strendur. Allt einstakt og ógleymanlegt.
Ferðir okkar í kringum páska undanfarin ár hafa tekist frábærlega vel og færri komist að en vildu. Því hefur verið ákveðið að fara aftur á þessar slóðir núna í nóvember
















Ferðin er unnin í samvinnu við Kambódíska ferðaskrifstofu sem hefur um langt skeið sett upp vel heppnaðar ferðir fyrir okkur.
Við breytum og aðlögum ferðina að íslenskum ferðalöngum – sem þurfa líka tíma til að slaka á og njóta á eigin spýtur.
- Víetnam
- Kambódía
- Thailand
Ferðin í hnotskurn
Innfæddur leiðsögumaður verður með allan tímann fyrir utan dvölina á ströndinni, en íslenskur fararstjóri verður með hópnum
frá brottför til heimkomu.
Öll hótel eru sérvalin og við erum búin að ganga um skugga um að gæði þeirra og staðsetning er frábær. Við forðumst stóru hótelkeðjurnar, heldur látum þjóðareinkenni njóta sín sem mest og best. Sama má segja um val á veitingahúsum, en mikið af máltíðum eru innifaldar í ferðinni. Við munum sinna bragðlaukunum vel og boðið er upp á leiðsögn og kennslu í matarmenningu landanna, en einstaka sinnum tökum við hliðarspor og hvílum okkur á asískri matargerð, enda urmull af alþjóðlegum veitingarhúsum í stórborgunum.
Við heimsækjum lítil þorp og okkur er boðið inná heimili þar sem húsráðendur eru gestrisnir og vilja gjarnan bjóða okkur
hressingu. Það getur verið ýmislegt framandi m.a. geta þeir huguðustu geta gætt sér á djúpsteiktum Tarantúlum og fleiri skordýrum – en það er svo sannarlega ekki allra að prófa það ! En heilt yfir, þá þykir maturinn í þessum löndum ákaflega ljúffengur og mikið er lagt upp úr fersku hráefni og nostrað er við matseldina.
Við kynnumst löndunum þremur að fornu og nýju og saga landanna er merkileg fyrir margra hluta sakir. Ferð okkar hefst í Bangkok, þaðan er flogið til höfuðborgar Vietnam, Hanoi. Við siglum um Halong flóa sem er af mörgum talinn einn af fegurstu stöðum í heimi. Við siglum þar um á svokallaðri júnku, sem er sérstakur timburbátur að fornri kínverskri fyrirmynd.
Ho Chi Minh City, sem áður hét Saigon, minnir á nýlendutíma Frakka, en jafnframt hefur borgin byggst upp hratt og nýtískulega og þar er mikill erill. Ekki er hægt að koma
til þessarar borgar án þess að skynja áhrif Víetnam stríðsins. Farið verður út fyrir borgina til að skoða Cu Chi göngin sem grafin
voru af miklu hugrekki og áttu sinn þátt í sigri Víetnam. Stríðsminjasafnið í Saigon lætur engan ósnortinn og er satt að segja ekki fyrir viðkvæma.
Í Siem Reap í Kambódíu er Angkor Wat, eitt af 7 undrum veraldar og markar sú bygging hápunkt velsældar í Kambódíu. Þar voru
áveitukerfi fyrir landbúnað, vegakerfi, gullhúðuð hof og hallir. En yfir Kambódíu hafa líka geisað hörmungar og í Phnom Penh
eru við minnt á ógnarstjórn Pol Pots og Rauðu Khmeranna sem hélt þjóðinni í heljargreipum í hartnær 20 ár. Á ferð okkar um landið hittum við fólk sem upplifði þessa tíma á eigin skinni. Það er ekki annað hægt að dást að fólkinu sem þarna býr,
nægjusamt og brosmilt.
Frá Phnom Penh er flogið til Bangkok og haldið er til Pattaya þar sem við dveljum á nýju og glæsilegu hóteli við ströndina síðustu 4 næturnar. Þar verður slökun aðalatriðið, enda hótelið við strönd, þar eru 3 sundlaugar í dásamlega fallegu umhverfi og 4 mjög góðir veitingastaðir, og auðvitað spa, heilsurækt og fleira. Á heimferðardegi, endum við ferðina í kveðjudrykk á þakbar með útsýni yfir ljósadýrðina í Bangkok.
Gististaðir
Ambassador Cruise
Halong Bay: Glæsileg aðstaða, svíta með sjávarsýn. Gist 29-30.mars
La Vela Saigon
Fimm stjörnu hótel í Saigon þar sem gist er 30.mars-1. apríl
Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn
Ferðalýsing
6.nóv
07:50 Brottför með Icelandair til Oslo
13:20 Brottför með Thai Airlines til Bangkok
7.nóv
06:20 Komið til Bangkok. Hópurinn fer beint í morgunmat á hótelinu, við fáum herbergin og getum hvílt okkur og frískað upp á okkur eftir langt ferðalag.
13:30 Hópurinn hittist í anddyri og haldið í skoðunarferð um borgina, m.a. sjáum við fyrrum konungshöllina og hin þekktu hof m.a. risa líkneskið af Búdda. Við tekur svo bátsferð til hins fallega Arun hofs. Að lokum er blómamarkaðurinn heimsóttur, sem er afar líflegur og þar má finna blóm sem við kunnum ekki að nefna !
Við komum aftur á hótelið fyrir kvöldmat og hver og einn getur hagað kvöldinu að eigin vild.
Morgunverður innifalinn.
8.nóv
09:00 Hópurinn hittist í anddyri og í dag er ferðinni heitið aðeins út fyrir borgina.
Við förum á hinn fræga járnbrautarmarkað, Maeklong Railway, þar sem kaupmenn þurfa að tæma bása sína í einum grænum í hvert skipti sem það kemur lest akandi eftir járnbrautarteinunum.
Síðan er farið á mótorbát framhjá ávaxtaekrum á leið okkar til Damnoen Saduak, hinum fljótlandi markaði. VIð dólum á litlum bátum um þennan líflega og litskrúðuga markað og hægt er að versla við bátafólkið ef áhugi er fyrir hendi
Við komum til baka fyrir kvöldverð.
Morgun- og hádegisverður innifalinn.
9. nóv
09:30 Hópurinn hittist í anddyri og haldið er út á flugvöll.
12:20 Flug frá Bangkok til Hanoi með Bangkok airlines.
14:15 Lent á Noi Bai flugvellinum þar sem leiðsögumaður okkar tekur á móti okkur.
Við höldum á hótel og tékkum okkur inn, og þeir sem vilja geta farið í dásamlegt nudd.
18:00 Water Puppet Show, leikbrúður í vatni sem fara yfir sögu Vietnam. Þetta er þjóðlegt og vel þess virði að eyða klukkustund á þessari sýning.
Eftir sýninguna, er kvöldverður á vietnömskum veitingastað, þar sem við förum í sannkallað ferðalag fyrir bragðlaukana.
Morgun- og kvöldverður innifalinn.
10. nóv
09:00 Leiðsögumaður hittir hópinn í anddyri hótelsins og farið verður í skoðunarferð um Hanoi.
Hanoi hefur verið höfuðborg Víetnam í nær 1000 ár og er jafnframt vagga menningar landsins.
Hvert ættveldi sem ríkt hefur hverju sinni, hefur skilið eftir sína menningararfleið. Því miður hefur
mikið glatast í tímans rás, þá aðallega vegna stríðsátaka. Engu að síður er enn að finna áhugaverð
og sögufræg minnismerki, einkum í miðborg Hanoi.
Meðal áhugaverðra staða sem verða heimsóttir, er safn um sögu ættbálka í Vietnam. Það er athyglisvert að í landinu eru skilgreindir 54 ólíkir þjóðernishópar.
Hádegisverður verður að sjálfsögðu ljúffengur.
Eftir hádegið er farið í um klukkustundar langan hjólatúr um gamla hluta borgarinnar. Mjög
algengur ferðamáti er hjólabíll þar sem farþegar sitja og eigandi hjólabílsins hjólar. Við eigum erfitt með að horfa uppá slíkt og finnum til með hjólagörpunum, en þannig er það bara þarna og
munum við prófa það. Túrinn um Hanoi lýkur við hið friðsæla Hoan Kiem stöðuvatn.
16:00 Boðið upp á „high
tea“ á huggulegu kaffihúsi.
Eftir kaffið er frjáls tími og kvöldmatur að eigin vali. Þeir sem vilja geta farið í matargöngu með guide (valfrjálst, aukakostnaður)
Gisting: Sama hótel og s.l. nótt.
Morgun- og hádegisverður innifalinn.
11.nóv
08:00 Í dag tökum við daginn snemma því það er um 3.5 klst keyrsla að Halong Bay þar sem við munum stíga um borð í glæsilega júnku, sem mun verða okkar dvalarstaður næstu tvo daga.
Á leiðinni til Halong Bay keyrum við í gegnum frjósamar sveitir meðfram Rauðá og ber ýmislegt
framandi fyrir augu, m.a. endalausir hrísgrjónaakrar og lítil þorp þar sem fólk sinnir sínum
hversdagslegu störfum.
11:00 komið er til Halong borgar og þar er stigið um borð í lítinn bát, sem siglir með hópinn í skipið sem staðsett er úti á flóanum. Þegar þangað er komið verður farið yfir öryggisatriði skipsins og dagskrá kynnt farþegunum og síðan er borinn fram ljúffengur hádegisverður.
Siglt er meðfram aragrúa af eyjum og er landslagið fagurt og óvenjulegt. Kalksteinsklettarnir og
smáeyjarnar rísa upp úr sjónum eins og tröllatennur, eða drekatennur eins og Vietnamar segja.
14:30 Luon hellirinn. Þið hafið val um að láta sigla með ykkur í hellinn í litlum bambusbát eða fara sjálf á kajak til að skoða inni í hellinum.
16:00 Staldrað er við Titov eyju, þar sem hægt er að baða sig í túrkis bláu vatninu eða klifra upp á topp og dást af útsýninu sem þar er.
16:30 Frjáls tími um borð. Boðið er upp á síðdegishressingu, og gott er að slappa aðeins af eða fara í spa og láta dekra við sig.
17:30 Þeir sem vilja, geta aðstoðað kokkinn við að búa til vorrúllur og það er svo „happy hour“ fram að kvöldmat.
19:00 Kvöldverður og lifandi músík, (það er dresskóði í kvöldmatinn, formal/semi formal/smart casual)
Gisting: Ambassador cruise
Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
12.nóv
06:30 Fyrir árrisula hefst morguninn með Tai Chi tíma uppi á dekki.
07:00 Borinn er fram léttur morgunverður, kaffi, te og nýbakað brauð.
07:30 Heimsókn í Sung Sot hellinn, sem er stærsti hellirinn á þessum slóðum og þar inni er að finna ótrúlega dropasteina.
08:30 Nú fáum við almennilegan morgunverð á veitingastaðnum meðan báturinn siglir um.
09:30 Hvert herbergi gerir upp reikninginn vegna drykkja og spa þjónustu ef einhver er.
10:15 Komið er í land en þar bíður rútan og leiðsögumaður okkar og við keyrum sem leið liggur á flugvöllinn,
18:00 Brottför flugs Vietnam airlines til Saigon ( Ho Chi Minh City)
20:10 komið til Saigon, og rúta fer með okkur beint á hótel, þar sem okkur bíður Dimsum hlaðborð.
Í Saigon er gríðarlega mikil umferð, og þar er mikil hjólreiða-og mótorhjólahefð og hver sem þangað kemur áttar sig ekki á því hvernig umferðin getur yfirleitt gengið snuðrulaust fyrir sig.
Gisting: Hotel Vela Saigon
Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
13.nóv
09:00 Eftir morgunmat er haldið áleiðis til Tay NInh, sem er í um 100 km fjárlægð frá borginni og það
verður vafalaust ýmislegt framandi sem fyrir augu ber á leiðinni.
12:00 Við borðum hádegisverð á hefðbundnum veitingastað á leiðinni til Cu Chi.
Cu Chi eru ótrúleg neðanjarðargöng eða öllu heldur gangnakerfi, sem voru byggð af
andspyrnumönnum í Vietnam þegar þjóðin barðist fyrir sjálfstæði sinu á sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar.
Þegar við komum á hótelið seinnipartinn, er frjáls tími og og hægt að taka lífinu rólega. Við mælum með sundlauginni á efstu hæð þaðan sem útsýni er allan hringinn !
Gisting: sama og s.l. nótt
Morgun-, hádegisverður innifalinn.
14. nóv
09:00 Eftir morgunmat skoðum við þessa stærstu borg Vietnam, en þar búa um 7 milljón manna. Saigon er svo full af mótsögnum. Á götuhorni sérðu ungan mann í jakkafötum að tala í farsímann sinn og á sama horni er kannski ung kona sem situr á hækjum sér með barn á bakinu og eldar eitthvað í potti sem hún selur vegfarendum.
Borgin er hávaðasöm og þar virðist vera mikið óskipulag, það eru vestrænir barir og kaffihús í bland við gamaldags víetnamska götuveitingastaði og það er hrópað, kallað og flautað. Einhver gaf það ráð til að komast yfir götu, væri bara að láta sig vaða út á umferðargötuna án þess að líta hvorki til hægri né vinstri og svo kemur það bara í ljós hvort þú komist yfir eða ekki. Örlögin eru búin að ákveða það hvort sem er! Götuljós eru jú til staðar á gatnamótum, en fátítt er að tekið sé mark á þeim.
Það eru nokkrir staðir sem er gaman er að skoða í borginni, eins og Thien Hau pagodan og Notre Dam dómkirkjan og margir fallegir garðar.Við stoppum til að sjá hefðbundna trúarathöfn við Cao Dai Holy See. Þeir sem taka þátt í athöfninni eru klæddir í litríkar skikkjur. Þessi trúarathöfn er svolítið sérstök því hún er afar forvitnileg blanda af Konfúsiusisma, Taosima, Buddisma og kristni.
12:30 Hádegisverður
Eftir hádegi heimsækjum við stríðsminjasafn þar sem sjá má sláandi staðreyndir um stríðið sem geisaði milli Vietnam og Bandaríkjamanna 1959-1975 og hafði skelfilegri afleiðingar en orð fá lýst. Rétt er að vara viðkvæma við safninu og þeir sem ekki treysta sér, geta sest á kaffihús og upplifað ys og þys borgarinnar.
Þegar degi fer að halla, tökum við flug til Siem Reap í Kambódiu.
19:20 Brottför flugs VN 815 til Siem Reap Kambódíu
20:35 Komið til Siem Reap.
Ath. við komu til Kambódíu þarf að framvísa passamynd og 30 USD á mann til að fá visa inn í landið við komu.
Kvöldverður við komu – vestrænn matseðill.
Gisting : Borat Angkor Resort
Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
15. nóv
09:00 Brottför frá hóteli.
Þar sem ekki er leyfilegt að aka um á rútu í þjóðgarðinum, fáum við litla bíla, eða svokölluð Tuk-tuk
til að fara með okkur í skoðunarferð um hina stórfenglegu fornu borg, Angkor Thom sem nær yfir 10 ferkílómetra
svæði.
Hluti af þessum miklu mannvirkjum hafa orðið undir í baráttunni við náttúruöflin, en krafturinn
í frumskóginum sem umlykur hofin er gríðarlegur og sveipar hofin dulúðlegum blæ. Frakkar hafa
tekið að sér að fjármagna hreinsun umhverfis hofin og fyrir fornleifafræðinga er svæðið ómetanlegur
fjársjóður.
Hádegisverð snæðum við á veitingastað í þjóðgarðinum.
Eftir hádegi höldum við áfram ferð okkar og núna er það hið heimsfræga hof Angkor Wat, sem talið er
eitt af 7 undrum veraldar, byggt á árunum 1110 – 1150. Þeir sem treysta sér í meiri göngu, geta í lok dags, gengið upp á hæsta punkt borgarinnar Phnom Bakheng til að sjá sólarlagið.
20:00 Kvöldverður er snæddur á veitingastað þar sem er boðið upp á ljúffenga Kambódiska rétti.
Gisting: sama hótel og sl. nótt
Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
16. nóv
05:00 fara sem hafa viljann og geta vaknað, en svo árla morguns er ferð til Angkor Wat til að sjá
sólarupprásina, sem er stórkostleg sjón. Það er svo farið til baka á hótel til að fá sér staðgóðan
morgunverð.
09:00 hefst eiginleg dagsskrá dagsins. Í dag sjáum bleika hofið, Banteay Srey, um 40 km frá Siem Reap, en þar er að finna fegurstu sýnishorn klassískrar listar í Kambódíu. Við heimsækjum þorpið Preah Dak og heimilsfólk á bóndabæ, þar sem við kynnumst daglegu lífi heimamanna, skoðum handverk og ýmsa heimaframleiðslu á kryddi, sápu og ilmvötnum, allt framleitt úr 100% náttúrulegum efnum.
Við smökkum Kambódískar hrisgrjónanúðlur – sem ku vera þær bestu í heimi og þarna gefast mörg
tækifæri til að smakka ýmiskonar spennandi snarl að eigin vali og á eigin kostnað.
Seinnipart dagsins er hópurinn frjáls ferða sinna,
Gisting: Sama hótel og s.l. nótt.
Morgun-, hádegisverður innifalinn.
17.nóv
08:30 Í dag er haldið að Tonal Sap sem er gríðarstórt stöðuvatn sem hefur verið afar mikilvægt til
fæðuöflunar í Kambodíu. Þar standa heilu þorpin á allt að 10 m háum stultum upp úr vatninu, því
vatnsborðið breytist eftir árstíðum og margir sem þarna búa hafa aldrei stigið fæti á meginlandið.
Hádegisverður er snæddur á kambódískum veitingastað.
Eftir hádegi heimsækjum við silkiormaræktun og kynnumst silkiframleiðslu eins og hún hefur verið
nánast óbreytt um aldir og sjáum hvernig silkiormar búa til hið verðmæta silki.
Eftir ferðina er frjáls tími og ef allt gengur upp, verðum við komin tímalega á hótelið til að slaka á við sundlaugina eða skoða sig um í miðbænum.
20:00 Aspara leikhús. Kvöldverðurinn er snæddur undir kambódískum dansi og söng.
Gisting: sama hótel og s.l. nótt
Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
18. nóv
08:30 Við leggjum í hann til höfuðborgarinnar, Phnom Penh í fyrra fallinu því vIð viljum ná sem mestu
út úr deginum. Alls er um 6 tíma keyrsla, en við munum stoppa nokkrum sinnum á leiðinni.
Við skoðum gömlu brúnna við Kampond Kdei, og við stoppum m.a. í þorpi þar sem hefð er fyrir því að veiða skordýr, m.a. tarantúlur, þessar fremur ófrýnilegu köngulær til matar. Þeim huguðustu býðst smakka á þessu Kambódíska góðgæti, djúpsteiktri tarantúlu og engisprettum sem þykir einstakt
lostæti á þessum slóðum. En sennilega er þessi fæða tilkomin vegna fæðuskorts á sínum tíma, en
hefur engu að síður orðið að matarhefð.
Gefinn er kostur á að kaupa sér hádegissnarl á leiðinni ( á eigin kostnað)
Við komu til Phnom Penh er frjáls tími, en förum svo í kvöldgöngu meðfram Mekong ánni og borðum kvöldverð um borð í bát sem siglir á ánni.
Gisting : Raffes Le Royal
Morgun- og kvöldverður innifalinn.
19.nóv
09:00 Við hefjum daginn á skoða helstu byggingar og hof borgarinnar, Silfur Pagóðuna og konungshöllina og gimsteina prýdd Búdda líkneski. Fyrrum fangelsið Toulsleng S21, öðru nafni Killing Fields, er í dag safn um einræðisstjórn Pol Pot, 1975-1979, en undir hans ógnarstjórn voru myrtar meira en 3,2 milljónir borgara og var menntafólk nánast þurrkað út. Við hittum fólk sem ólst upp við þessar skelfingar og segir okkur sögu sína. Á þessum tíma áttu sér stað fjöldamorð sem eiga sér varla hliðstæðu í sögunni.
Hádegisverður
Eftir hádegi er boðið upp á ferð á rússneska markaðinn, eða slaka á við sundlaugina á hótelinu.
Ef ykkur langar á markaðinn er auðvitað gaman að gramsa þar. Verið þó gætin, því mikið er um falsaða vöru, sérstaklega skartgripi. Góður og viðurkenndur siður er að þjarka um verð, en ekki þarf að taka fram að við verðum alltaf að sýna fyllstu kurteisi, því það er ákveðin list sem felst í því að prútta fallega.
Kvöldverður á sérlega skemmtilegum stað sem býður upp á matreiðslu eins og við erum vön.
Gisting: sama hótel og s.l.nótt.
Morgun-, hádegis- og kvöldverður innifalinn.
20.nóv
07:30 hópurinn er sóttur á hótelið og keyrður út á flugvöll
10:30 Brottför flugs með Bangkok airlines til Bangkok
11:45 Komið til Bangkok og þar sem tekið er á móti hópnum og keyrt er síðan 1 klst og 30 mín á hotel, sem er á Jomtien
Beach, Pattaya, Andaz by Hyatt
Pizzuhlaðborð bíður okkar við komu.
Á þessu dásamlega hóteli, dveljum við í góðu yfirlæti til 11. apríl. Á hótelinu eru 5 mismunandi veitingastaðir, sumir fínni, en aðrir afslappaðir, en maturinn er fyrsta flokks.
Morgunmatur er innifalinn, en aðrar máltíðir eru á eiginn kostnað, fyrir utan pizzurnar við komu.
Ef ykkur langar að skoða umhverfið eða skreppa til Pattaya eða í golf , er hótelið meira en tilbúið að aðstoða okkur við að skipuleggja slíkt og fararstjóri verður líka innan handar við að finna út úr því.
Morgun-, hádegisverður innifalinn.
21-23. nóv
Sól, sæla og slökun
Morgunverður innifalinn.
24.nóv
Við njótum þess að vera á hótelinu fyrripartinn en leggjum af stað til Bangkok seinnipartinn. Við hæfi er að kveðja Asíu formlega og því stoppum við á einum af mörgum glæsilegum þakbörum í
Bangkok.
20:00 Haldið út á flugvöll
Morgunverður innifalinn.
Kveðjukokteill.
25.nóv
00:05 Brottför flugs TG 954 með Thai airlines til Kaupmannahafnar og farangur er innritaður til Keflavíkur.
07:25 Lent í Kaupmannahöfn
13:50 Brottför flugs FI 319 með Icelandair til Keflavíkur
14:45 Lent í Keflavík
Umsagnir
Samantekt
24. mars Brottför frá Íslandi til Bangkok. Flogið eru með Icelandair og Thai airlines
25. mars Komið til Bangkok snemma morguns, skoðunarferð e.h. M
26. mars Skoðunarferð í Bangkok M,H
27. mars Flug til Hanoi, skoðunarferð e.h M, K
28. mars Hanoi, skoðunarferð M, H
29. mars Halong Bay M, H, K
30. mars Flug til Saigon M,K
31.mars Cu Chi-göngin M, H
1.apríl stríðsminjasafnið í Saigon, flug til Siem Reap M, H, K
2. apríl Skoðunarferð í Tuk-tuk, Angkor Wat M, H, K
3. apríl Angkor Wat M,H
4. apríl Tonal Sap vatnið M,H, K
5. apríl Keyrt til Phnom Penh, kvöldverður á bát á Mekong M, H, K
6. apríl Skoðunarferð í Phnom Penh M, H, K
7. apríl Flug til Bangkok, keyrt til Pattaya strandarinnar M, H
8. apríl Slökun á strönd M
9. apríl Slökun á strönd M
10.apríl Slökun á strönd M
11.april Slökun á strönd fyrri partinn og keyrt á flugvöll e.h. M
12.apríl flug til Íslands
M: morgunverður / H: hádegisverður/ K: kvöldverður
ATH Þar sem margar máltíðir eru innfaldar, er nauðsynlegt að vita fyrirfram um sérstakar óskir varðandi mat, svo og
ef ofnæmi og/eða óþol er fyrir hendi
