17.mars.-6.apríl 2027.
Indókína: Vietnam - Kambódía - Laos
Skaginn austan við Indland og vestan við Kína heitir Indokína. Þar eru löndin Vietnam, Kambódía og Laos, og stundum er Thailand talið með.
Við höfum farið með hóp norður Thailand, til Laos og niður Mekong fljótið, þaðan til Vietnam og Kambódíu sem var stórkostleg 3ja vikna ferð, sannkallað ævintýri fyrir öll skilningarvitin, en núna s.l. 3 ár hefur ferðin legið til Thailands, Vietnam og Kambódíu.
Páskaferðin í ár verður til Víetnam, Kambódíu og Laos, en við sleppum Thailandi í þetta sinn.
Stór hluti þessara landa er enn því sem næst ósnortinn af vestrænni menningu, en þó er hægt að finna ekta frönsk bakarí í þröngri götu, eða snickers súkkulaði milli núðlanna í búðarborðinu. En alls staðar er þó vel tekið á móti ferðamönnum og víða má finna frábær hótel, veitingahús og þjónustan er alls staðar til fyrirmyndar.
Víetnam og Kambódía hafa sérstöðu að því leiti að þar var óhugnanlegur stríðsrekstur í 15 ár, fyrir og eftir 1970, sem var mikil blóðtaka af vinnufæru fólki, arfleið og menningu. En engu að síður, það er stutt í velvild og bros og yndislegt að heimsækja þessi lönd sem eru svo friðsæl í dag og fólk brosleitt og rólegt.
Angkor Wat i Kambódíu, vatnamarkaðir í og brjálaða umferðin í Ho Chi Minh borg í Víetnam, dásamlegur matur og fallegar strendur. Allt einstakt og ógleymanlegt.
Ferðir okkar í kringum páska undanfarin ár hafa tekist frábærlega vel og færri komist að en vildu. Því hefur verið ákveðið að fara aðra ferð á þessar slóðir um páskana 2027.
















Ferðin er unnin í samvinnu við Kambódíska ferðaskrifstofu sem hefur um langt skeið sett upp vel heppnaðar ferðir fyrir okkur.
Við breytum og aðlögum ferðina að íslenskum ferðalöngum – sem þurfa líka tíma til að slaka á og njóta á eigin spýtur.
- Víetnam
- Kambódía
- Laos
Ferðin í hnotskurn
Innfæddir staðarleiðsögumenn verða með allan tímann fyrir utan dvölina á ströndinni, en íslenskur fararstjóri verður með hópnum
frá brottför til heimkomu.
Öll hótel eru sérvalin og við erum búin að ganga um skugga um að gæði þeirra og staðsetning er frábær. Við forðumst stóru hótelkeðjurnar, heldur látum þjóðareinkenni njóta sín sem mest og best. Sama má segja um val á veitingahúsum, en mikið af máltíðum eru innifaldar í ferðinni. Við munum sinna bragðlaukunum vel og boðið er upp á leiðsögn og kennslu í matarmenningu landanna, en einstaka sinnum tökum við hliðarspor og hvílum okkur á asískri matargerð, enda urmull af alþjóðlegum veitingarhúsum í stórborgunum.
Við heimsækjum lítil þorp og okkur er boðið inná heimili þar sem húsráðendur eru gestrisnir og vilja gjarnan bjóða okkur
hressingu. Það getur verið ýmislegt framandi m.a. geta þeir huguðustu geta gætt sér á djúpsteiktum Tarantúlum og fleiri skordýrum – en það er svo sannarlega ekki allra að prófa það ! En heilt yfir, þá þykir maturinn í þessum löndum ákaflega ljúffengur og mikið er lagt upp úr fersku hráefni og nostrað er við matseldina.
Við kynnumst löndunum þremur að fornu og nýju og saga landanna er merkileg fyrir margra hluta sakir. Ferð okkar hefst í Luang Prabang í Laos, sem er ákaflega friðsæl og notaleg borg, við kynnumst m.a. lifnarhættum munka sem eru nátengdir sögu landsins. þaðan er flogið til höfuðborgar Vietnam, Hanoi og skoðum hrísgrjóna akrana í norðri. Við siglum um Halong flóa sem er af mörgum talinn einn af fegurstu stöðum í heimi. Við siglum þar um á svokallaðri júnku, sem er sérstakur timburbátur að fornri kínverskri fyrirmynd.
Í Siem Reap í Kambódíu er Angkor Wat, eitt af 7 undrum veraldar og markar sú bygging hápunkt velsældar í Kambódíu. Þar voru
áveitukerfi fyrir landbúnað, vegakerfi, gullhúðuð hof og hallir. En yfir Kambódíu hafa líka geisað hörmungar og í Phnom Penh
eru við minnt á ógnarstjórn Pol Pots og Rauðu Khmeranna sem hélt þjóðinni í heljargreipum í hartnær 20 ár. Á ferð okkar um landið hittum við fólk sem upplifði þessa tíma á eigin skinni. Það er ekki annað hægt að dást að fólkinu sem þarna býr,
nægjusamt og brosmilt.
Frá Phnom Penh er flogið til Ho Chi Minh City, sem áður hét Saigon. Borgin minnir á nýlendutíma Frakka, en jafnframt hefur borgin byggst upp hratt og nýtískulega og þar er mikill erill. Ekki er hægt að koma til þessarar borgar án þess að skynja áhrif Víetnam stríðsins. Farið verður út fyrir borgina til að skoða Cu Chi göngin sem grafin voru af miklu hugrekki og áttu sinn þátt í sigri Víetnam. Stríðsminjasafnið í Saigon lætur engan ósnortinn og er satt að segja ekki fyrir viðkvæma.
Að lokum liggur leiðin til Phu Quoc eyju í Vietnam, sem er sannkölluð paradís. Þar munum við slaka á og melta allt það sem fyrir augu okkar hefur borið í ferðalaginu ævintýralega. Við dveljum á glæsilegu hóteli við ströndina síðustu 5 næturnar. Þar verður slökun aðalatriðið, enda hótelið við strönd og öll aðstaða frábær.
Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn
Nánari ferðalýsing með tímasetningum, dagstúrum, máltíðum ofl. verður sett inn fljótlega
Umsagnir
Samantekt
17. mars Brottför frá Íslandi til Luang Prabang í Laos í gegnum Oslo og Bangkok. Flogið eru með Icelandair, Thai airlines og Bangkok airlines
18. mars Komið til Luang Prabang
19. mars Luang Prabang
20 mars Luang Prabang – Sapa dalur í Vietnam
21.mars Sapa Hanoi, skoðunarferð M, H
22.mars Hanoi
23.mars Hanoi.
24.mars Halong Bay
25.mars Hanlong Bay -Siem Reap.
26.mars Siem Reap .
27.mars Siem Reap
28.mars Siem Reap -Phnom Phen
29.mars Phnom Phen
30. mars Flug til Ho chi minh – Saigon
31.mars Saigon.
1. apríl Saigon -Phu Quoc eyja og slökun á strönd
2.apríl Phu Quoc .
3.apríl Phu Quoc
4.apríl Phu Ouoc
5.apríl Phuo Quoc – Saigon
6.apríl Flug til íslands rétt eftir miðnætti
ATH Þar sem margar máltíðir eru innfaldar, er nauðsynlegt að vita fyrirfram um sérstakar óskir varðandi mat, svo og
ef ofnæmi og/eða óþol er fyrir hen
