Gengið umhverfis Mt. Blanc
Það verður að segjast eins og er, að fyrir þá sem elska að ganga á fjöllum, er nauðsynlegt að ganga Mt. Blanc hringinn a.m.k einu sinni um ævina. Það er ævintýri líkast að rölta í kringum hæsta fjall Evrópu eftir þægilegum stígum, umlukin dásamlegum fjöllum Alpanna. Gengið eru um dali og grænar grundir, upp fjallaskörð og í leiðinni uppgvöta mismunandi hefðir og menningu í þessum þremur löndum sem gengið eru um: Frakkland, Sviss og Ítalíu.
Hringurinn umhverfis Mont Blanc er ein vinsælasta gönguleið í í Ölpunum, alls um 170 km löng leið og er ægifögur og fjölbreytt göngu- leið. Þar trónir Mt. Blanc yfir öllu, 4.810 m, hæsti tindur í Evrópu.
Miðað er við að ganga 5-7 klst á dag,það fer eftir hæðarmuni í göngunni hversu margir km eru gengnir á degi hverjum, en gangan verður aldrei skelfilega erfið ! Ferðin í heild sinni flokkast sem miðlungserfið og krefst þess að göngugarpar séu í þokkalegu formi—ágætur mælikvarði er að komast upp að steini á Esju á u.þ.b. 1.5 klst—2 daga í röð og vera í nokkuð virkri þolþjálfun 3 í viku. Það er hvorki klifur né mjög brattir stígar, en nánast 1000 m hækkun á hverjum degi.
I þessari ferð er boðið upp á gistingu í 2ja manna herbergjum. Enginn lúxus, en valin er besta gistingin á hverjum stað. Inni- falið er morgunmatur, hádegisnesti og 3ja rétta kvöldverður, en þó ekki drykkir. Gott er að hafa meðferðis orkustöng, súkkulaði eða annað til að maula eins og hver vill, en heilsusamlegt snakk er líka í boði yfir daginn.
-Mt. Blanc gnæfir allstaðar tignarlega yfir gönguleiðinni
-Nálægð við jökla, en þó öðruvísi upplifun en á Íslandi
-Þægileg gisting allar nætur, með privat baðherbergi
-Morgunmatur, hádegisnesti og kvöldverður
-Farangurinn er fluttur í bíl á milli næturstaða
-Hámark 14 manns í hóp
-Með í för er íslenskur fararstjóri og einnig reyndur enskumælandi fjallaleiðsögumaður með þau réttindi sem slíkur á þessu svæði.
Sjá nánar leiðarlýsingu, verð og hvað er innifalið, ásamt lýsingu á því hvað þarf að vera í farteskinu af fatnaði og öðru og undirbúningu fyrir ferðina.
ATH: Ferðalýsingin hér að neðan byggir á þeim upplýsingum sem eru fyrir hendi þegar ferðin er sett upp. Sumt er ekki hægt að sjá fyrir, t.d. aðstæður í náttúrunni,og hversu vel hópurinn er á sig kominn. Því þarf gönguhópurinn að vera tilbúinn að breyta gönguleiðum og tímasetningum, komi eitthvað ófyrirséð uppá.
BROTTFÖR
Hópurinn hittist í Chamoinix í Frakklandi þar sem gist er á hóteli. Ath. einning er hægt að kaupa flug og keyrslu !
LES PRAZ DE CHAMONIX – LAC BLANC – ARGENTIERE
09;00 Akstur að Flégére kláfinum í Les Praz
09:45 Lagt af stað upp að “svölunum” þar sem Mt. Blanc sést vel og allir þeir göngugarpar sem þar ætla að klífa. Við hinsvegar förum að Blanc vatninu sem er í 2.300 m hæð og síðan er gengið í gegnum skóginn í Argentiére þorpið þar sem gist verður á hoteli.
5.5-klst ganga / hækkun / lækkun : + 450 m ; – 950 m / Lengd göngu : 9 km
BOVINE OR ARPETTE- CHAMPEX
Haldið til Sviss til CoL de la Forclaz ( 20/30 min). Gengið yfir graslendið í Bovine þar sem er ákaflega fagurt útsýni yfir Rhone dalinn. Ef aðstæður leyfa og hópurinn treystir ser, þá er val um að fara aðeins hærri fjallaveg meðfram Trient Glacier til að komast að Fenétre d´Arpett ( 2700 m).
Gist á hoteli í Champex
5.5-klst ganga / Hækkun/lækkun : + 800 m ; – 750 m (via Bovine) / lengd göngu : 16 km
Eða 6 klst ganga / Hækkun/lækkun: + 980m ; – 970 m (via Arpette) / Lengd göngu: 14 km
GRAND COL FERRET – ITALIEN VAL FERRET
Farið með rútu í þorpið La Fouly (ca 1 klst). Gangið upp á fjallið Col Ferret (2537 m), þar sem landamæri Sviss við Ítalíu liggja. Þið munið hitta fyrir bændur að störfum við La Peule. Síðan er gengið niður í Val Ferret, sem er Ítalíu meginn, þar sem þið gangið í hlíðum Pré de Bar Glacier og Mont Dolent fjallinu – og þar hittast landamæri landanna þriggja, Sviss, Frakklands og Ítalíu. Gist er í mjög þægilegum fjallaskála í Arnouva eða farið er með stræto á hótel í La Palud.
5-klst ganga / Hækkun(lækkun : + 840 m ; – 750 m / Lengd göngu: 16 km
MONT DE LA SAXE – COURMAYEUR
Gengið er niður til Bonatti, Þetta er ein fegursta leið ferðarinnar þar sem útlýni er alla leið: Mont de la Saxe Mont Blanc, Mont Dolent, L’Aiguille du Triolet, the Grandes Jorasses og fleiri tinda. Ferð dagsins lýkur í bænum Courmayeur á Ítalíu og gist er á hóteli.
5.5-klst ganga / Hækkun/ lækkun: + 650 m ; – 1200 m / Lengd göngu : 15 km
COL DE LA SEIGNE – LES CHAPIEUX
Farið er með rútu til La Visaille (about 30 mins). Gengið er í Val Veny framhjá stöðuvatninu Miage og áfram að Col de la Seigne, en þar liggja saman landamæri Ítalíu og Frakklands. Hægt er að fara til baka í gegnum Balcon de Chécroui og le Mont Fortin, en þaðan sést Mt. Blanc frá mjög óvenjulegu sjónarhorni. Gist er í góðum fjallaskála eða farið með rútu á hotel í nærliggjandi þorpi.
6 klst / Hækkun/lækkun : + 850 m ; – 650 m / lengd göngu : 20 km
COL BONHOMME – LES CONTAMINES-MONTJOIE
Gengið er upp í hæðirnar í Col du Bonhomme (2329m), sem áður fyrr voru leiðir sölumanna með varning upp í fjallabyggðir. Farið er svo niður eftir gömlum rómverskum vegi að kapellunni Notre-Dame-de-la-Gorge, stuttur akstur þaðan á hotel í þorpinu Les Contamines.
6 klst/ Hækkun/lækkun : + 850 m ; – 1500 m / Lengd göngu : 17 km
GLACIER DE BIONNASSAY – COL DU TRICOT – LES HOUCHES
Gengið eru upp Bionnassay Glacier gegnum þorpið, Champel eða via the Col du Tricot (2120m) þaðan sem útsýnið er einstaklega fagurt að Dômes de Miage, Chamonix dalinn og Mont Blanc. Að lokum er gengið niðurLes Houches bæinn.
5 klst / Hækkun/lækkun: + 750 m ; – 800 m (via Champel) / lengd göngu : 13 km
Eða 6.5-klst / hækkun/lækkun: + 1100 m ; – 1250 m (via the Col du Tricot) / lengd göngu : 16 km
Ferðinni lýkur um kl. 16:00 og þá bíður rúta til að keyra á hótel.
HEIMFERÐ
09:00 Rúta til Genfar fyrir þá sem hafa keypt flugið með, og þaðan er flug með Icelandair til Íslands.
Verð frá 395.000 kr m.v. tvíbýli.
Ath. aðeins er 1 einstaklingsherbergi í boði og kostar það 68.000 kr aukalega
Staðfestingargjald er 85.000 kr
Hægt er að kaupa flug til Genfar og flugvallakeyrslu í gegnum Stjörnuferðir og bætist þá 102.000 kr. við verðið.
Innifalin er 23 kg. innrituð taska
-Gisting í 7 nætur á þægilegum hótelum og fjallaskálum með sér baðherbergi.
-Gisting í upphafi og í lok ferðar á 4* hóteli
-Fullt fæði: morgunmatur, hádegisnesti og 3ja rétta kvöldverður ásamt heilsunasli yfir daginn
-akstur á farangri á milli gististaða
-kostnaður við strætó og kláfa þegar þess er þörf
-íslenskur fararstjóri
-enskumælandi staðarleiðsögumaður með réttindi og tryggingar sem fjallaleiðsögumönnum á svæðinu ber að hafa
Kemur fljótlega
Stjörnuferðir starfa undir leyfum og tryggingum Polaris journeys ehf. Eigandi og framkvæmdastjóri er Hildur Gunnarsdóttir
