30. maí - 6. júní 2026
Komdu með í dekurferð til Spánar
Ferðinni er heitið í fjalllendið í Valencia héraði norð vestur af Alicante. þar verður dvalið í litlu og mjög fornu arabísku þorpi, Casas Benali. Húsakosturinn hefur verið gerður upp einstaklega skemmtilega, með það fyrir augum að litlir hópar geta dvalið þar og sinnt sínum hugðarefnum.
Þetta er ákaflega friðsæll staður og því kjörinn til að huga að taugkerfinu í gegnum jóga og bandvefslosun og um leið njóta fallegrar náttúru og borða ljúffengan og heilnæman mat í góðum félagsskap.
Leiðbeinendur eru þær Hildur Rut og Hekla, en þær hafa leitt saman krafta sína frá árinu 2023 og boðið upp á fjölda námskeiða, pop-up tíma og retreat ferða innanlands.
Með einstakri nærveru og hlýju, skapa þær öruggt rými fyrir þig þar sem auðveldara er að gefa eftir, slaka á og endurnæra taugakerfið. Ávinningurinn er m.a. mýkri líkami, betri tenging við þig sjálfa og meira jafnvægi í daglegu lífi og almennt betri líðan á sál og líkama.
Þær leggja áherslu á að finna brosið sitt og gleðina í gegnum lífsins verkefni og að það geti jafnvel hjálpað manni á erfiðustu tímum að gefa sér leyfi til að hafa gaman og njóta líka.
Nærandi dagskrá fyrir sál og líkama undir handleiðslu Hildar og Heklu:
- Mjúkt jóga og jóga nidra
- Teygjur
- Bandvefslosun
- Kröftugt jóga workshop með Hildi (val)
- Fræðsla um bandvefskerfið og mikilvægi slökunar ásamt vinnuhefti
- Náttúruganga
- Veglegur gjafapoki
- Góð og nærandi samvera
- Paellu workshop, þar sem við lærum að elda þennan þekkta þjóðarrétt Spánverja sem við snæðum svo saman eftir eldamennskuna!
Í stuttu máli verður ferðin dásamlegt dekur fyrir taugakerfið, þar sem þið verðið leiddar í daglegt mjúkt jóga og bandvefslosun ásamt jóga nidra djúpslökun. Einnig fáið þið góða og gagnlega fræðslu um bandvefskerfið og lærið um áhrif og mikilvægi slökunar.
Gefinn er nægur frjáls tími til að slaka á í sólbaði, njóta góðs félagsskapar, mynda ný tengsl eða fara í göngutúra í náttúrunni.










Casas Benali - einstök upplifun í hjarta Spánar
Casas Benali er upprunalegt, mjög gamalt arabískt þorp á 68 hektara friðsælu landi – aðeins 1,5 klst. frá Alicante og 1 klst. frá Valencia. Þetta litla þorp var endurbyggt af hjónunum Martinu og Daniel fyrir 9 árum, sem heilluðust algjörlega af staðnum og breyttu honum í draumastað þar sem tíminn hægir á sér og kyrrðin tekur við.
Hér finnur þú skjól frá ys og þys hversdagsins, umvafinn stórbrotinni náttúru, þar sem hugurinn nær að slaka og endurnærast.
Við leigjum allan staðinn einungis fyrir okkar hóp, sem gerir dvölina afar persónulega og einstaka. Húsakosturinn samanstendur af tveimur húsum með alls 10 þægilegum tveggja manna herbergjum auk tveggja einstaklingsherbergja og eru herbergin öll með sér baðherbergi. Á svæðinu er einnig rúmgóður fundarsalur með skjá, jóga-stúdíó, þarna háhraðanet og starfsfólk á vakt allan daginn sem sér til þess að þér líði vel.
Maturinn er ferskur og hollur, og eldaður af ástríðu úr hráefnum sem koma að mestu frá nágrenninu.
Casas Benali býður upp á hinn fullkomna vettvang fyrir hópa sem vilja og þurfa afslöppun í töfrandi umhverfi þar sem hver dagur gefur nýja orku.
Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn
Flug með Icelandair til Alicante
Flugvallakeyrsla til/frá Casa Benali
Gisting í tvíbýli (þríbýli eða fjórbýli)
Dagleg handleiðsla Hildar og Heklu: Mjúkt jóga, jóga nídra, teygjur og bandvefslosun
Fræðsla um bandvefskerfið
Náttúruganga
Paellu workshop
Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður flesta daga ásamt vatni, te, kaffi og ávöxtum yfir daginn. Hollusta matarins er í fyrirrúmi.
ATH: Hádegis- og kvöldverður er ekki innifalinn daginn sem boðið verður upp á ferð til Valencia og ekki heldur kvöldverður á brottfararkvöldi.
- Nudd- og slökunarmeðferðir
- Dagsferð til fallegu borgarinnar Valencia
- Náttúruupplifun með nesti og nýja skó!
Umsagnir
Fararstjórar
Hekla Guðmundsdóttir og Bandvefslosun
Djúpstæðar ástæður eru fyrir því að Hekla kennir bandvefslosun en hún hefur á sinni lífsleið orðið fyrir nokkrum slysum. Hún var frá vinnu á tímabilinu 2003 til 2017 en fann svo leið út á vinnumarkaðinn aftur eftir að hafa fundið á eigin líkama hversu mikið bandvefslosun hjálpaði.
Hekla hefur mikla ástríðu fyrir því að fræða um allt sem tengist bandvefskerfi líkamans og hjálpa öðrum að skilja líkama sinn betur og uppruna stoðkerfisverkja. Þannig hefur hennar aðferð hjálpað öðrum að líða betur bæði á líkama og sál.
Body Reroll æfingakerfið sem Hekla þróaði gengur út á að vinna í ró og læra að lesa í viðbrögð líkamans. Kerfið er sérlega gagnlegt til að draga úr verkjum og minnka vöðvaspennu, auka hreyfigetu og liðleika og bæta líkamsstöðu. Einnig stuðlar kerfið að því að draga úr streitu sem er einkar mikilvægt í hraða nútímasamfélagsins.
Hekla fer mjúka leið í sinum tímum og ákvað hún því að koma með sína eigin vörulínu. Boltarnir mega ekki vera of harðir því þá náum við ekki að róa niður taugakerfið.
Hekla lauk námi í bandvefslosun árið 2019, The Roll Model Method Practitioner frá Yoga Tune Up. Lauk einkaþjálfararéttindum árið 2018 og að auki hefur Hekla réttindi til að leiða Jóga Nidra og Yin Jóga tíma.
Ásamt því að hafa lokið fjölda námskeiða fer Hekla nú reglulega til Amsterdam og stundar þar nám hjá Incitus í frekari bandvefsfræðum ásamt bandvefsnuddi.
Hekla hefur kennt bandvefslosun víða og lengst af undir merki Bandvefslosunar. Ásamt námskeiðum býður hún einnig upp einkatíma og ráðgjöf. Hekla hefur staðið fyrir kennaranámskeiðum í Body Reroll, Bandvefslosun síðan árið 2020.
Hekla er jákvæð og lífsglöð að eðlisfari og sú orka smitast oft til þeirra sem tímana hennar sækja.
Hægt er að fylgjast með Heklu á Instagram @bandvefslosun
Hildur Rut Björnsdóttir og Jóga til þín
Hildur stofnaði Jóga til þín árið 2021 þar sem löngunin til að gefa áfram þá gjöf sem jóga hafði verið fyrir hana var mjög sterk.
Hildur brennur fyrir að hjálpa fólki að líða betur á líkama og sál og veit að jógaiðkunin getur komið okkur ansi langt í átt að betri líðan, ekki bara á dýnunni heldur þegar áhrifin smitast út í lífið sjálft.
Það er hennar hjartans mál að styðja fólk í að hlusta betur á líkama sinn, róa hugann og finna sinn innri kraft – bæði á jógadýnunni og utan hennar.
„Mér finnst líka mikilvægt að við finnum léttleikann og brosið – jafnvel þegar lífið reynir á“ segir Hildur.
Umfram allt er góð orka og gleði eitthvað sem skiptir Hildi máli að fólk finni fyrir í tímunum hennar. Hildur kennir frá hjartanu og orkan verður umvefjandi.
Hildur útskrifaðist með jógakennararéttindi frá Shree Yoga árið 2020.
Hún hefur síðan bætt við sig Yoga Nidra og Yoga Nidra Advanced réttindum hjá Kamini Desai.
Að auki hefur hún réttindi til að leiða Yin Yoga og bandvefslosunartíma.
Þorstinn í nýja vitneskju í tengslum við jógafræðin og hreyfingu er mikill og hún viðheldur og uppfærir sína þekkingu stöðugt með því að sækja fyrirlestra, tíma og fræðslu.
Hildur leiðir Orkuflæði, Jóga Nidra hádegishleðslu og Yin&Nidra í Samkennd Heilsusetri. Ásamt námskeiðunum í Samkennd kennir hún jóga og bandvefslosun í Hreyfingu.
Hægt er að fylgjast með Hildi á Instagram @jogatilthin
Stjörnuferðir starfa undir leyfum og tryggingum Polaris journeys ehf. Eigandi og framkvæmdastjóri er Hildur Gunnarsdóttir














