5.-20. september 2026
Ógleymanleg ferð til S-Afríku og Zimbabwe
Hin leyndardómsfulla Afríka er eins og fjarlægur draumur fyrir flest okkar. Stjörnuferðir ætla nú að gera drauminn að veruleika og bjóða upp á stórglæsilega 15 daga ferð til S-Afríku og Zimbabwe.
Lögð er áhersla á að kynnast landi og þjóð, menningunni, matnum og náttúrunni. Hótelin sem við gistum á eru sérvalin og flest eru lítil hótel í einkaeign en með þjónustu á heimsmælikvarða.
Við hefjum ferðina í Höfðaborg. Þar er margt að sjá og skoða, en fyrst og fremst er það framandi menning og lífsstíll sem heillar okkur.
Borgin sjálf er afar falleg og var nýlega kosin fegursta borg í heimi ! Náttúrufegurðin í nágrenni borgarinnar er mikil, mörgæsirnar ótrúlega krúttilegar og maturinn og vínin framúrskarandi.
Eftir nokkra daga dvöl í borginni höldum við til Kruger þjóðgarðarins þar sem gist verður á mjög svo sérkennilegu hóteli, en það eru lestarvagnar á brú yfir á sem rennur í gegnum þjóðgarðinn og því gott útsýni til að fylgjast með hjörðum dýra sem koma að ánni til að svala þorsta sínum. Boðið er upp á safarí í jeppa tvisvar á dag.
Síðan er flogið til Victoria Falls i Zimbabwe, þar sem við enn og aftur verðum agndofa yfir fegurð og krafti náttúrunnar. Við heimsækjum fílagarð, þar sem hlúð er að móðurlausum fílsungum og fílum sem ekki hafa burði til að lifa af upp á eigin spýtur í náttúrunni.
Þessi ferð verður líka matarveisla frá upphafi til enda, því mikill og allskonar matur er innifalinn og er það sannkallað tilhlökkunarefni að kynnast matargerð í þessum heimshluta,















Gististaðir
Hótelið er frábærlega staðsett í Höfðaborg, með fjölda verslana og veitinga- og kaffihúsa í göngufæri.
Einstök lúxus gisting í Kruger þjóðgarðinum. Þetta eru lestarvagnar sem hefur verið komið fyrir á brú og þeim breytt í ótrúlega skemmtilegt hótel.
Öll herbergin eru svítur með sér inngangi og öllum þægindum. Þarna er sundlaug, heilsulind og fallegir garðar og útivistarsvæði í kringum hótelið.
Þetta litla, fallega boutique hótel er aðeins í 15 min fjarlægð frá Victoria Falls, í kyrrlátum skógi og umlukið afar fallegum garði.
Hér getur þú bókað sæti eða sent fyrirspurn
Ferðalýsing
Flug með British Airways til Höfðaborgar í gegnum London
Höfðaborg á sér yfir 300 ára sögu, og hefur ýmislegt gengið á. Byggingar, listasamfélagið og matarmenningin endurspegla það. Í borginni búa í dag um 5 milljónir manna.
Borgin er lífleg og jafnvel má segja að þar sé stemmningin ekki ósvipuð og í borgum við Miðjarðarhafið.
Matarmenningin er frábær, falleg byggingarlist sem minnir á Hollensku borgirnar, listalíf blómstrar og íþróttalið eru farsæl í keppnum á heimsvísu. Bakgrunnur borgarinnar er hið einkennandi fjall Table Mountain (Borðfjall) sem og úfið Atlantshafið. Í borginni er að finna ýmsar spennandi sérverslanir, fjölda safna, frábæra veitingastaði og í kringum Höfðaborg er heimsþekkt vínframleiðsla.
Gist verður á Victora and Alfred Waterfront í 5 nætur. Herbergin okkar eru með útsýni að Mountain Table.
Saga og nútíma þægindi mætast á hinu heillandi Victoria & Alfred Hotel. Hótelið telur 94 herbergi, þau eru rúmgóð eða um 40 fm að stærð og okkar herbergi verða með útsýni til Table Mountain.
V&A Waterfront hotel er staðsett við höfnina með fjölda af veitingahúsa og kaffihúsa í göngufæri. Þannig að hver og einn ræður sínum tíma, enda hópurinn vafalaust lúinn eftir flugið.
Gaman er að fara í könnunarferð í hverfinu þar sem hótelið okkar er staðsett, en höfnin í nágrenni hótelsins er elsta starfandi höfn á suðurhveli jarðar. Þetta hverfi er öruggt að ganga um og er afar fjölskrúðugt, og iðar af lífi og menningu, þar sem fólk býr og starfar.
Ef veður leyfir, hefst dagurinn með ferð í kláf upp á Borðfjallið (Table Mountain) þar sem við njótum stórkostlegs útsýnis yfir borgina og Atlantshafið, með Robben eyju í fjarska.
Síðan göngum við um miðborgina, röltum um Company Gardens, þar sem finna má fjölbreyttan og einstakan gróður og litríkt fuglalíf.
Við Wale Street stendur minnisvarði um Desmond Tutu, kallaður “The Arch”, við hlið St. George’s Cathedral – einnig kölluð People’s Cathedral vegna hlutverk kirkjunnar í andófi gegn aðskilnaðarstefnunni.
Síðan verður farið í Slave Lodge, sem er safn um þrælahald og hvernig saga Suður-Afríku er samtvinnuð þrælahaldi.
Að því loknu verður farið að Castle of Good Hope, elstu byggingu landsins, sem nú hýsir hergagnasafn og er oft notað við hátíðlega atburði í borginni.
Við heimsækjum afar sérstakt kaffihús og síðan er smá hvíld á hóteli áður en við förum í ævintýralega kvöldverð !
M,K
Það er hægt að lofa því að þessi dagur verður magnaður, en leið okkar liggur um stórbrotna náttúru og fagra strandbæi. Við keyrum meðfram Atlantic Seaboard um Sea Point, Clifton og Camps Bay til Hout Bay, þar sem farið verður í bátsferð til Selaeyju ef veður leyfir.
Síðan heldur ferðin áfram yfir Chapman’s Peak, sem þykir einn fegursti strandvegur heims, þaðan til Cape of Good Hope Nature Reserve og Cape Point – þar sem Atlantshaf og Indlandshaf mætast. Við förum með sérstakri lest upp klettana að vitanum. Við gætum þess að stoppa reglulega til að dást að útsýninu og taka myndir.
Næst er komið við í Simon’s Town, þar sem eru einstakar byggingar frá Viktoríu tímabilinu og við heimsækjum að sjálfsögðu Boulders Beach, þar sem sést má afríska mörgæsastofninn í sínu náttúrulegu umhverfi og það er svo sannarlega dásamlegt að fá tækifæri til að sjá alvöru mörgæsir !
Eftir hádegismat heimsækjum við Kirstenbosch grasagarðinn í austur hlíðum Borðfjallsins, sem er einstaklega fallegur og þess virði að skoða.
Komið er til baka á hotelið um kl. 16:00
M,H
Í dag kynnumst við mannréttindasögu Suður Afríku og heimsækjum Robben Island. Við hefjum gönguna í hinu sögulega hverfi Bo-Kaap, sem varð heimili margra múslima og leystra þræla eftir að þrælahald var afnumið. Næst förum við í Zonnebloem (áður District Six) og skoðum safnið sem varðveitir minningar um íbúana sem voru fluttir voru nauðugir á tímum aðskilnaðarstefnunnar.
Því næst er haldið til Langa hverfins, þar sem farið er í Guga S’Thebe menningar- og listamiðstöðina, sem vinnur göfugt starf til að efla samfélagið. Gönguferð með leiðsögumanni gefur innsýn í daglegt líf íbúa.
Að því loknu er farið aftur að V&A Waterfront og ferðast með ferju til Robben Island. Þar er farið í skoðunarferð um fangelsið þar sem Nelson Mandela sat inni.
Athugið: Það getur verið að einhverjir staðir séu lokaðir á sunnudögum og almennum frídögum. Ef sú verður raunin, þurfum við e.t.v. að víxla dögum.
VIð verðum komin til baka á hótelið um kl. 16, en kl. 19 erum við tilbúin í aðra matarupplifun.
Kvöldverður verður á sérstökum stað í Höfðaborg, og við förum í heillandi ferðalag inn í menningu og matargerðarhefðir Afríku.
Matseðillinn samanstendur af fjölbreyttum, hefðbundnum afrískum réttum, þar á meðal ilmandi karrí kjötréttum og bragðmiklum grænmetisréttum – allt matreitt með ferskum kryddum og hráefni frá svæðinu.
Eitt af því sem gerir þessa upplifun sérstaka er samspil matar og menningar. Gestir njóta fyrirfram ákveðinnar máltíðar á meðan lifandi tónlist og afrískur dans gera kvöldið einstakt. Trommuleikur gegnir lykilhlutverki í afrískri menningu – hann er ekki einungis skemmtun, heldur ber með sér sögur, sameinar samfélög og fagnar mikilvægum atburðum.
Við upplifum því sannkallaða veislu fyrir öll skilningarvitin. Gestir eru hvattir til að taka þátt, hvort sem það er í trommuleik eða dansi – sem margir gera með glöðu geði – og umbreyta kvöldinu í sannkölluð hátíðarhöld !
M,K
Í dag köfum við dýpra í menningu og matarmenningu vínræktarsvæðis í nágrenni Höfðaborgar, Cape Winelands, en við munum upplifa meira en einungis vínsmökkun. Þetta er líka í matar- og menningarferð þar sem áhersla er lögð á handverk og hráefni til að framleiða hágæða víngerðir svæðisins.
Fyrsti viðkomustaður er hin heillandi húgenottaborg Franschhoek, þar sem við heimsækjum vínbúgarðinn Babylonstoren. Þar fá gestir leiðsögn um stóran garð sem er hjarta býlisins. Garðurinn er vel skipulagður og stígar fylgja ásum klukkuturns, gömlu víngerðarinnar og hæðarinnar Babylonstoren. Gangan er um þrír kílómetrar, svo þægilegir skór eru nauðsynlegir.
Síðan er haldið til Paarl-svæðisins, nánar tiltekið til Spice Route. Þar hefst dagskráin með víns- og osta-/kjötpörun í smökkunarsalnum. Því næst tekur fáum við að smakka handunnar súkkulaðisprufur hjá The Chocolate Room by Beyers, og síðan grappa-smökkun hjá Wilderer Distillery.
Ef einhver kýs frekar bjór, þá býður Cape Brewery Company (CBC) upp á kynningu, leiðsögn um verksmiðjuna og smökkun á fjölbreyttum bjórum á krana.
Hádegismatur er í boði á staðnum (ekki innifalinn í verði). Deginum lýkur með heimsókn á Villiera víngerðina, þar sem gestir njóta samsetningar af freyðivíni (MCC) og sætindunum Sally Williams. Að lokinni ferð er ekið til baka á hótelið.
Í dag tökum við innanlandsflug til Kruger Mpumalanga International Airport í Kruger þjóðgarðinum.
Kruger þjóðgarðurinn er 19.500 km² að stærð og er stærsti þjóðgarðurinn í Suður-Afríku, sem og sá elsti í allri Afríku. Þjóðgarðurinn er vinsæll hjá ferðamönnum, þar sem samgöngur eru auðveldar og þar er mikill fjölda villtra dýra, þar á meðal þau stóru fimm: Ljón, hlébarðar, nashyrningar, fílar og buffalóar. Fjöldi annarra spendýra og fágætra fuglategunda búa einnig í garðinum. Landslagið er fjölbreytt: fjöll, sléttur og hitabeltisskógar, sem tryggja bæði fallegar og æsispennandi safaríferðir.
Boðið er upp á tvær safari ferðir á dag í opnum jeppum og í hverri ferð sjáum við eitthvað nýtt. Í Kruger þjóðgarðinum er gott vegakerfi, og ekki er ekið utanvegar, því mikil áhersla er lögð á að vernda dýrin.
Gist er í sögufrægum lestarvögnum, Carriage suites í 3 nætur og er allur er matur innifalinn. Þetta eru 100 ára gamlir lestarvagnar sem voru gerðir upp og eru í dag lúxus hótel. Þeir standa á Selati brúinni sem er yfir Sabie ánna. Þar sem mikið er um glerveggi, er útsýnið af brúnni er stórkostlegt og þetta er svo sannarlega óvenjulegur næturstaður, þar sem horft er niður á dýrin sem sækja í vatnsbólið
Lestarvagnarnir eru 24 sem gera 31 herbergi, svo gistingin er mjög þægileg og róleg.
Þarna er veitingarstaður, bar, setustofa og kvikmyndasalur, 3 sundlaugar og einstakir útsýnispallar.
M,K
Við njótum þess að vera í rólegheitum í Kruger þjóðgarðinum, Það er boðið um á Safarí ferð 2x á dag og hvetjum við fólk til að nýta sér það.
M, H, K
Áfram höldum við njóta dvalarinnar og virða fyrir okkur dýralífið.
M, H, K
Eftir morgun safaríið í Kruger þjóðagarðinum og ljúffengan hádegisverð, flytjum við okkur til White River.
White River er smábær stofnaður um 1890, og hefur verið mikilvægur í landbúnaði og ferðaþjónustu. Svæðið er þekkt fyrir ræktun á hitabeltisávöxtum, blómum og viði. Bærinn er vinsæll meðal bæði heimamanna og ferðamanna vegna þess að í kringum Crocodile-ánna er einstaklega fallegt. Möguleikar í fræðslu og náttúruvísindum eru fjölmargir, námsmenn sem koma í heimsókn t.d. í Lowveld garðinn eða Reptile Park.
Við gistum í Nut Grove Manor sem stendur 2,3 hektara landi við White River. Upprunalega bæjarhúsið er frá 1924. Umhverfið er afar fallegt, iðagræn tún og trjálundir, en stutt er í verslun og þjónustu.
Við gistum í lúxussvítum, sem allar eru með sérinngangi, loftkælingu og hita, baðherbergi með baðkari og sturtu, flatskjá, hárþurrku, örbylgjuofni, minibar og öryggishólfi.
Þarna eru 15 svítur, Sundlaug, heilsulind, frábær veitingastaður á staðnum, skemmtileg útvistasvæða og fallegur garður.
M, H, K
Dagurinn einkennist af náttúrskoðun, þar sem marga dásamlega staði er að finna í Drakenberg fjallsgarðinum og útsýnið er stórfenglegt og engu líkt.
Þetta eru þeir staðir sem skoðum: Pilgrim’s Rest, Robber’s Grave, Blyde River Canyon, Three Rondavels, God’s Window, Wonder View, Bourke’s Luck Potholes, Lisbon-fossar
Við fáum ljúffengan hádegisverð og eftir matinn förum við upp í Gorge Lift sem er lyfta niður í skóglendi við fossa, gönguleiðir og hengibrýr. Þeir sem eru hugaðir getað prófa zipline !
M, H, K
Við fljúgum til Victoria Falls í Zimbabwe, en bærinn stendur við vesturjaðar fossanna sem hann er kenndur við. Eftir að David Livingstone sá fyrst „reykinn sem glymur“ eins og hann kallaði fossinn, hófst uppbygging á svæðinu í kringum aldamótin 1900 þegar kannaður var möguleikinn á að nýta fossana til raforkuframleiðslu. Bærinn óx enn frekar þegar lestarsamgöngur og þegar Victoria Falls brúin var opnuð í apríl 1905 og tengdi þá Suður-Ródesíu (síðar Ródesía; nú Zimbabve) við Norður-Ródesíu (síðar Sambía).
Vic Falls, eins og bæjarbúar kalla gjarnan bæinn sinn, er þekktur sem ein mesta ævintýraborg Afríku, þar sem úrval útivistar og spennandi afþreyingar bjóðast. Auk þess að bjóða upp á flúðasiglingar í heimsklassa er þar einnig eitt hæsta teygjustökk heims, fallhlífastökk, svifferðir, þyrluferðir og margt fleira.
Þrátt fyrir að aðeins um 35.000 manns búa í Vic Falls, hefur bærinn líflegt og skemmtilegt yfirbragð.
Þar er að finna skemmtilegar handverksverslanir, lítil brugghús og kaffi-og veitingarhús.
Ferðaþjónusta er stór hluti af efnahag bæjarins og því mikilvæg atvinnugrein. Victoria Falls, er á heimsminjaskrá UNESCO og eitt af sjö náttúruundrum heimsins.
Við gistum í 3 nætur á Mbano Manor hotel,sem er er lúxus boutique-hótel í einkaeigu í 15 mín fjarlægð frá Victoria Falls þjóðgarðinum. Hótelið sem samanstendur af 18 svítum og einni einkavillu í skóginum. Hótelið er staðsett í fornum tekkskógi og útivistarsvæðið og garðarnir eru einstaklega fallegir og umhverfið mjög kyrrlátt. Þarna er frábær veitingastaður, sundlaug, setustofa, bókasafn og heilsulind. Herbergin eru öll með loftkælingu.
Eftir að við höfum komið okkur fyrir á hótelinu, heimsækjum skemmtilegan veitingastað sem er í Victoria Falls og stendur hátt yfir gljúfri Zambezi-árinnar, rétt fyrir neðan fossana. Einföld hönnun byggingarinnar skapar samfellda tengingu milli inni- og útiveitingarýma og býður gestum upp á einstaka upplifun með stórbrotnu útsýni.
Við njótum úrvals kokteila og forrétta á meðan við sitjum við snarbratta klettabrún, umlukinn trjám og runnum, undir víðáttumiklum himni. Þegar vindurinn leikur sér í hárinu, sólsetrið strýkur húðina og fuglasöngur hljómar úr trjátoppunum, þá munt þú átta þig á því að þetta er einn af þeim stöðum á jörðinni sem er nánast fullkominn !
Við fyllumst auðmýkt gagnvart mikilfengleika náttúrunnar sem fyllir hjörtun af þakklæti og ánægju. Úrval vína, svalandi drykkja og ljúffengra forrétta bíður gesta á þessum afskekkta og friðsæla stað.
M,K
Það er í sannleika sagt ólýsanleg og svo áhrifamikil upplifun að líta fossana augum í fyrsta sinn. Við fáum þá tilfinningu að hér sé um að ræða fullkomið meistaraverk náttúrunnar. Engin ljósmynd nær að fanga tilfinninguna sem hríslast um mann.
Hinir miklu fossar, Victoria Falls mynduðust fyrir 150 milljón árum, og eru í dag 108 m háir og meðalrennsli á ári er um 1100 rúmmetrar á sekúndu. Hámarks vatnsflæði er yfirleitt í maí á hverju ári, svo tímasetning okkar er frábær !
Við förum í skoðunarferð að fossunum með leiðsögumanni, sem leiðir okkur í gegnum regnskóginn og segir okkur sögur. Við stoppum við Stóra Tréið sem er fallegur og þekktur útsýnisstaður.
Við borðum hádegisverð á mjög skemmtilegum og afslöppuðum veitingastað, sem býður upp á ekta afríska stemmningu og góðan mat og oft er þarna lifandi tónlist.
Eftir hádegismatinn forum við aftur á hótelið okkar og slökum á eða veljum okkur afþreyingu af listanum sem er neðst á degi 14.
M, H
Í dag eigum við stefnumót við fíla og kynnumst þessum risavöxnu og stórkostlegu skepnum.
Við heimsækum Wild Horizons Wildlife Sanctuary sem er stofnun fyrir munaðarlausa fílsunga og fíla sem hafa slasast eða eiga ekki möguleika á að lifa af einir í náttúrunni. Heimsókn á þennan fallega stað er einstakt og áhrifamikið tækifæri til að hitta fíla í náttúrulegu umhverfi.
Fyrst er fræðslufyrirlestur um björgun og endurlífgun fílanna. Síðan fylgir okkur leiðsögumaður um svæðið þar sem þú hittir hópinn í náttúrulegu umhverfi. Ferðin endar með léttum veitingum við Masuwe‑ána.
Seinnipartinn ætlum við að fara í siglingu inn í sólarlagið á Zambesi ánni á sannkölluðum lúxus bát, sem er rúmgóður og fallegur. Útsýnið á siglingunni, með Victoria Falls í baksýn og sólsetri gerist varla fegurra. Við snæðum 3ja rétta máltíð undir stjörnubjörtum Afríku himni. Má segja það þetta verði okkar kveðjukvöldverður, til heiðurs frábærri ferð til Afríku.
M,K
Önnur valfrjáls afþreying:
Fílar og list: Eftir stutta kynningu um verndarstarfsemi svæðisins færðu að mála í friðsælu vatnsbletti undir möpumatré, leiðin af myndlistarkennara.
Þyrluferð yfir fossana
Victoria Falls úr lofti. Ferðin fer í risaþyrlum með glergluggum og því óheftu útsýni. Flugleiðin er ennig niður í Batoka‑gljúfrið ef aðstæður leyfa, og skóglendið og dýralífið við ánna gera ferðina ógleymanlega
Chinotimba bærinn
Gefur innsýn í líf Zimbabwe-búa. Í fylgd leiðsögumanna, gangið þið um bæinn og lærið um . sögu, menningu og daglegt líf og kynnist auk þess samheldni og lífskrafti íbúanna. Þið fáið að smakka heimagerðan mat, skoðið handverk og ef þið eruð heppin, takið þátt í þeim viðburði sem e.t.v.er í þorpinu þegar þið heimsækið það.
Söguleg brú
Victoria Falls‑brúin er 198 metra stálbogabrú yfir Zambezi‑ána sem tengir Zimbabve og Sambíu, opnuð 1905. Hún var hluti af járnbrautaráætlun Cecil Rhodes frá Höfða til Kashmír. Í dag er hún mikilvæg samgöngutenging og er vinsæll ferðamannastaður þar sem fólk getur farið bungee‑stökk eða zip-line. Brúin hefur bæði sögulegt gildi og er frábær útsýnisstaður.
Bamba Tram –Morgunferð frá brúnni og í gegnum Zambezi þjóðgarðinn
Upplifið sólarupprisu frá göngubrúnni með stórkostlegu útsýni yfir fossana og Batoka gilið. Síðan er farið í gegnum þjóðgarðin í litlu Bamba lestinni og fræðumst enn frekar um þennan dásamlega stað.
.
Flogið er heim með British Airways frá Johannesburg i gegnum London
Samantekt
5/9 Brottför frá Íslandi
6/9 Lent í Höfðaborg snemma morguns
7/9 Skoðunarferð í Höfðaborg M, K
8/9 Skoðunarferðir í nágrenni Höfðaborgar. M, H
9/9 Hinar marvíslegu hliðar Höfðaborgar M, K
10/9 Vínsmökkun og fleira áhugavert M
11/9 Flug til Krugerþjóðgarðarins M, H, K
11-13/9 Dvalið í Krugerþjóðgarinum, villt dýr og skemmtilegar safarí ferðir M,H,K
13/9 White River og Drakenberg fjallsgarðurinn M, H, K
14/9 White River og Drakenberg fjallsgarðurinn M,H, K
15/9 Flug til Victoria Falls í Zimbabwe M, K
16/9 Viktoria Falls M, H
17/9 Viktoria Falls M, K
18/9 flogið til Johannesburg
19/9 Heimför
M: morgunverður / H: hádegisverður/ K: kvöldverður
ATH Þar sem margar máltíðir eru innfaldar, er nauðsynlegt að vita fyrirfram um sérstakar óskir varðandi mat, svo og
ef ofnæmi og/eða óþol er fyrir hend
